26. januar 2009

Atvinnulaus

Thats me!
Nú en það er ekki hægt annað en að gera gott úr hlutunum. Svo ég skelli mér í líkamsrækt á morgnanna nokkrum sinnum í viku, les og sinni heimilisstörfum, sæki um vinnur, reyni að passa háttatímann og láta sóun á tíma ekki ná yfirhöndinni.
Það kom mér verulega á óvart þegar ég var búin með skólann, hvernig "blaðran" sprakk. Ég átti von á að vera full orku í Desember, að leyta að vinnu, að undibúa jólin, að njóta þess að vera búin og njóta þeirra daga sem ég væri í "fríi" þar til ég fengi vinnu. En ég var bara flöt eins og pönnukaka, loftlaus eins og sprungin blaðra og hvorki bakaði fyrir jólin né skrifaði jólakort.
Eftir fund hjá fagfélaginu leið mér mun betur og blaðran reyndist ekki sprungin og loftið er farið að fylla hana smátt og smátt. Vá þvílíkar myndlíkingar...
Það er líka gott að spjalla um hlutina og tvær vinkonur sem hafa verið í sömu aðstöðu, höfðu sömu sögu að segja, vá það var þvílíkur léttir! þetta var semsagt ekki bara ég sem var að fara niðrí svarta holu þegar allt átti að vera svo gott, þetta er bara eðlilegt eins og ein vinkonan sagði; maður er búin að stefna að ákveðnu markmiði, að ljúka námi, svo stíft í svo langan tíma, síðan þegar því markmiði er náð, hvað þá? hvað tekur við?
En nú er allt á uppleið enda hækkandi sól, dagurinn að lengjast og "vintergæk" farin að spretta upp í garðinum eins og hann geti ekki beðið með að fylla hjörtu fólks með von um að vorið komi á ný.
Þá kom að því að ég hafði eitthvað að segja.
Verið sæl að sinni

24. december 2008

juleblogg

Jólablogg
það er aðfangadagur
Í nótt var brotist inn í bílinn minn
brotin afturírúða en engu stolið
í bílnum voru 3 barna DVD myndir
Af hverju var minn bíll valinn?
Tja sem betur fer ekki Petu bíll sem er í pössun
og er parkerað við hliðina á mínum.

Kertasníkir gaf nýþvegin náttföt í skóinn, DVD myndir og eitthvað slím og slímuga hönd.
Skrifaði langa færslu um daginn en var óvarkár og geymdi hana ekki áður en ég rauk frá tölvunni til að sinna einhverju mjög áríðandi örugglega.

Í ár voru engin jólakort send. Það er þó næstum hannað, en ekki klárað og því verða þetta fyrstu jólin mín(eða svo ég muni eftir) þar sem ég sendi ekki kort(nema ég skyldi ákveða að senda það rafrænt á eftir...)Ég er búin að fá nokkur rafræn kort og prentaði þau út og setti meðal þeirra sem komu með kallinum í rauðu fötunum(og þá meina ég ekki jólasveininn).

Ég óska ykkur öllum innilega gleðilegra jóla og gott nýtt ár!