28. juni 2008

Belja á sleða ekki svelli

Þá er fjórðu önn lokið. Prófi og prófverkefni náð og bara lokaverkefnið eftir. Lífið er yndislegt og ég er komin í frí.

Mikið er nú úrvalið af raunveruleikaþáttum. Sumir þættir betri en aðrir en í dag horfði ég á einn af þeim í betri kantinum. það var um unglingsstelpu sem langaði að verða fegurðardrotting, en hún var með félagsfælni, þybbin og var strítt í skóla. Á fimm vikum gerði hún sig klára fyrir keppnina. já ég veit alveg hvað þú ert að hugsa " hvað er svona gott við fegðurðarkeppni, það ætti að BANNA þær" Já já já, en bara róleg/ur. Unglingsstúlkunni tókst á þessum fimm vikum að vinna á sinni félagsfælni, koma sér í betra form og öðlast þar með aukið sjálfstraust. Hún átti að finna sér einhverskonar góðgerðarstarfsemi og hún hélt tónleika til styrktar ungmennastarfsemi með það fyrir huga að hjálpa börnum sem verða fyrir einelti eða sem leggja í einelti. Svo stóð hún á sviðinu fimm vikum síðar og 11 sentímetrum mjórri í mitti, sem sannur sigurvegari þó svo hún hafi ekki komist í efstu sætin.

Stúlka ein hér í bæ, fjögurra ára, vaknaði með martröð og hélt foreldrum sínum vakandi einhverja stund. Aðalpersóna martraðar þessarar var nornin ÉG!!! ég galdraði mér í eitt dýrið á eftir öðru og var stúlkan dauðhrædd við mig!

Sögustund kvöldsins fjallaði um belju og kráku sem léku sér við þá iðju að renna sér á sleða.

Slysabarn dagsins var Steini sem endaði á slysó eftir að hafa labbað á stillads og fengið gat á hausinn....

21. juni 2008

21 júní 2008

Ég er í bloggstuði. Já það er sko bara alveg hreint ótrúlegt að ég skuli vera komin í bloggstuð eftir svona bloggleysi. Það mætti líka snúa þessu við og segja að það sé alveg hreint ótrúlegt hvað ég hef bloggað lítið undanfarið, manneskja með jafn mikla tjáningarþörf og ég!

Í dag var 21 júní.
Kannski ekkert svo merkilegt
Lengsti sólardagur ársins reyndar
Já og svo það að tvær stórmerkilegar konur eru fæddar þennan dag.
Mamma mín og ég!
Bara með 30 ára millibili.

Við mamma eigum litla frænku, hana Evu Maríu sem á líka afmæli í dag, hún er 21 árs í dag.
4 árum áður en hún fæddist, dó frænka okkar hún Salvör sem fædd var 21 júní, hún hefði orðið 110 ára í dag!
Salvör var systir afa.
Fyrir Evu Maríu er mamma systir afa hennar. Þannig að ekki nóg með að við Eva María eigum sama afmælisdag, heldur eiga afasystur okkar sama afmælisdag og við! þetta þykir örugglega stórmerkilegt í augum numerolog [ hvað skyldi það nú heita á íslensku, einhver sem veit það??númerafræðings...hmmm]

Þar til ég flutti frá eyjunni fögru til Danaveldis, héldum við mamma alltaf uppá daginn saman. Sannkallaðir tvíburar, með 30 ár á milli sín, fæddar undir merki tvíburanna.

Pabbi var vanur að gera alltaf mikið út úr deginum eftir að ég hætti að halda uppá hann með fjölskylduboði. Þetta var auðvitað stór dagur þar sem tvær af hans 5 stelpum áttu afmæli. Við fengum óskipta athyglina og alltaf valdi ég kjúkling í matinn. Já því réði ég, því samkvæmt mömmu þá hætti hún að eiga afmæli þegar ég fæddist og er því 29 ennþá!

Það var einn afmælisdaginn minn, fyrir 7 árum síðan að við Steini settum upp hringana í lágu kjarri í fallegum skóg í lignu veðri við sólsetur, afar ástfangin. Og kirkjugólfið er enn ótroðið...

Eitt sinn var ég svaramaður á afmælisdaginn minn.

Áður var hásumar 21 júní og allir komnir í frí og fjölskylduboðin því stundum fámenn og útsölur voru óþekkt fyrirbæri á þessum árstíma.Núna eru útsölur og skólinn ekki enn komin í sumarfrí.

Eitt sinn gerði ég snjókarl upp í Munaðarnesi á þessum merka degi ársins.

Takk fyrir afmæliskveðjur, hvort sem voru í kommentum, smsum, símanum, með knúsi eða msn. Úff hvað ég er nú slæm að muna ekki alltaf eftir ykkar degi (roðn)

10. juni 2008

kæra dagbók!

17 km ganga hjá Alexöndru í dag, upp kletta og fleira. Er dóttlan stödd á eyju einni langt langt útí hafi sem mun heita Borgundarhólmur á íslenskri tungu, en er það þó rangnefni því sérnöfn er ekki hægt að þýða og heitir eyjan því Bornholm bæði hér, heima og þó víða væri farið. Eyjan sést á kortinu lengst til hægri fyrir sunnan Svíþjóð.
Þar er hún í skólaferðalagi alla vikuna og veðrið er hreint út sagt gott.
Tónleikaferðalag 5-6 júní 2008. Parken-Copenhagen
Það er ekki ómögulegt [semsagt mögulegt] að ég sé hætt að drekka bjór.........
Ég bauð mig auðvitað fram á mínu tónleikaferðalagi við að aðstoða Celine með lögin hennar en ég skil ekki á hvaða hóstamixtúru hún er eiginlega þar sem ég varð hás í tvo daga á eftir...
Ég hélt einkatónleika á eftir og skemmti þar með dönum með rammíslenskri tónlist á meðan 40 þúsund af þeim yfirgáfu Parken. Fékk ég þar dygga aðstoð Petu ásamt fleirum og úr varð að fleiri íslendingar slógust í hópinn og héldum við okkar einka skrúðgöngu niður í bæ. Fengum við Peta svo að kúra í Elísubetarbóli og var það nú mikið gott og alltaf gott að fá að knúsa hana aðeins þó samverustundin hafi verið ansi stutt í þetta sinn því um morguninn var rokið í hið háttvirta sendiráð til að endurnýja passa frumburðarins. Svo flug heim og beint uppí skóla að sýna góðum hópfélögum mínum smá samhug í verki og fá afhent lesefni helgarinnar.

Afrakstur helgarinnar
Tré rifið upp með rótum og 27 gráður dynjandi á andlitinu sem var um 39 gráður örugglega enda upphitað af sól og svita.

Dagurinn í dag
...var nú meiri hrakfalladagur dætra minna, þeirra litlu. Flaug músin á hausinn út á götu svo jörðin hristist...

Síðar hjólaði Ísabella á konu eða kona á hana og hún datt og komu á hana göt á hendi og hné og kúla á kinn.


1. juni 2008

Hárfínn söngur

Enn allt á fullu á þessum bæ. Skrifa þessar línur á meðan ég býð eftir að geta opnað ritgerðina sem ég skila á morgun, en hún er svo stór að Word ræður varla við þetta...
Fór á sumarshow á hárgreiðslustofu einni hér í bæ með Petu, síðastliðin fimmtudag. Þar var eitt módelið sem bar af öllum hinum, það var engin önnur en Alexandra. Þetta var allt hið flottasta, tapas og kokteilar lige til að þamba...mmm... magadans og gaman.






Á fimmtudaginn verður tekið smá frí frá daglegu amstri ( í miðju prófverkefni!!!), skutlast til Køben með Petu á tónleika með engri minni frægari eða betri en sjálfri Celine Dion! (nú er Hildur örugglega svolítið öfundsjúk...). Ég dýrka þessa söngkonu alveg hreint, ekki síst þegar hún syngur á því fagra máli frönsku, vona að hún taki þó ekki sé nema eitt lag á frönsku. Já já og Óli er bara besti gæji í bænum og Peta hans líka ;)
Þetta er Hrund sem kveður úr heitri skólastofunni, sátt við góða ritgerð og gott verkefni.