Þar er hún í skólaferðalagi alla vikuna og veðrið er hreint út sagt gott. Tónleikaferðalag 5-6 júní 2008. Parken-Copenhagen
Það er ekki ómögulegt [semsagt mögulegt] að ég sé hætt að drekka bjór.........
Ég bauð mig auðvitað fram á mínu tónleikaferðalagi við að aðstoða Celine með lögin hennar en ég skil ekki á hvaða hóstamixtúru hún er eiginlega þar sem ég varð hás í tvo daga á eftir...
Ég hélt einkatónleika á eftir og skemmti þar með dönum með rammíslenskri tónlist á meðan 40 þúsund af þeim yfirgáfu Parken. Fékk ég þar dygga aðstoð Petu ásamt fleirum og úr varð að fleiri íslendingar slógust í hópinn og héldum við okkar einka skrúðgöngu niður í bæ. Fengum við Peta svo að kúra í Elísubetarbóli og var það nú mikið gott og alltaf gott að fá að knúsa hana aðeins þó samverustundin hafi verið ansi stutt í þetta sinn því um morguninn var rokið í hið háttvirta sendiráð til að endurnýja passa frumburðarins. Svo flug heim og beint uppí skóla að sýna góðum hópfélögum mínum smá samhug í verki og fá afhent lesefni helgarinnar.
Afrakstur helgarinnar
Tré rifið upp með rótum og 27 gráður dynjandi á andlitinu sem var um 39 gráður örugglega enda upphitað af sól og svita.
Dagurinn í dag
...var nú meiri hrakfalladagur dætra minna, þeirra litlu. Flaug músin á hausinn út á götu svo jörðin hristist...

Síðar hjólaði Ísabella á konu eða kona á hana og hún datt og komu á hana göt á hendi og hné og kúla á kinn.

11 kommentarer:
Elsku stelpurnar okkar.
Það eru bara endalausar hrakfarir, þó gott að ekki fór enn ver.Allar búnar að lenda í slysum nú síðustu daga.
kveðja frá ömmu, afa og Kára
Það er eitthvaðí loftinu hérna í Sonder svei mér þá...allir að slasa sig. Litlan mín Handleggsbraut sig einmitt um helgina. Og eins og við vorum að ræða um daginn...engin slysavarðstofa hér vegna verkfalls.
Gangi þér vel með verkefnið..
Kv,Dísa
ææ
mikið held ég nú að hún Bella mín hafi gert mikið drama úr þessu, og Emma mín haft gaman af þessu öllu saman.
Hér á bæ er skriðdýr komið á stjá.
Og sjáðu hvað mér hefur tekist lystavel að kenna ömmu gerði að kvitta hjá þér.
Kv. RS, og KD-skriðdýr
hmmm það er kannski vert að taka það fram að Ísabella var á leið til vinkonu sinnar, Elmas og var hún ekkert að láta þetta stoppa sig svo eftir huggun frá konunni hélt hún beint heim til Elmas og fékk bara plástra þar! var þetta svo varla nefnt þegar heim var komið fyrr en sú minnsta var búin að fá óþægilega mikla athygli og myndatöku út á sín sár...
Já, það er fjör :)
Innlitskvitt og góðar kveðjur :)
Guðrún Þ.
Bara góðan bata á öll sár. Hvernig voru tónleikarnir?? Knús Þöll
Eruð þið ekki með klaufatryggingu ?
Hafðu það gott í lestrinum í dag :)
Peta
Takk sömuleiðis fyrir komuna þó ég hafi mest lítið séð af þér fyrir utan nokkur knús þarna um nóttina!
Kannast við svona klaufatímabil, þau stoppa yfirleitt alltaf aftur alveg þangað til þau byrja aftur!!!
Knús frá Köben!
Klaufatrygging!!
Góð hugmynd, hún þyrfti að vera til á hverju einasta heimili.
kv. amma Gerður
Til hamingju með afmælið :)
Eigðu góðan dag, þótt ég hafi gleymt því og munað eftir því áður en þú fórst !!! sem er gott mál , en þú stalst af mér stæðinu í morgun það er flott afmælisgjöf :)
enn og aftur til hamingju með daginn
Kveðja
Bestaskinn
Til hamingju með afmælið dúllan mín
knus
Send en kommentar