28. november 2007

Sokkabönd í salati

Það var svo skrýtið einn daginn þegar ég vaknaði og opnaði sinnepið til að fara í sokkana þá sá ég sólina í sófanum, þvílíkt og annað eins að borða epli og fiskur í baði þegar brauðið var lagt á og við dönsuðum á vettling. Ekki leist mér á blikuna þegar hendin fór af til að sjóða saltið úr sárinu. Bíó kölluðum við þetta fara í bleikan lykil í sultunni.
Hvað get ég annað sagt.....









22. november 2007

bærinn MINN

Það eru ófá fallegu húsin í bænum.

Hér eru nokkrar myndir sem ég hef tekið

(held þó að Steini eigi þá neðstu...)























20. november 2007

Tilvera okkar er undarlegt ferðalag

Ein ekki í bloggstuði.

Hef verið slegin yfir missi kunningjakonu minnar og bloggvinkonu, hennar Lindu Bjarkar sem missti hann Ása sinn úr krabbameini. Hvað lífið getur verið ósanngjarnt. Elsku Linda, þú átt alla mína samúð, ég vildi að ég gæti gert meira en svo.

Mér er kallt þessa dagana og finnst brotið á eðli mannsins með því að halda öllum plönum áfram þrátt fyrir myrkur.

Ég þakka þó sniðugum mönnum fyrir að hafa fundið upp á jólavertíðinni, sem lýsir rafmagnsljósum í myrkrinu og stuðla að kósýheitum og fjölskylduhittingi.

Það dýrmætasta sem ég á er Steini og stelpurnar. Ég trúði eitt sinn að vinirnir væru fjölskyldan sem maður veldi sér sjálfur. En vinir eru vinir og sumir ekki einu sinni sannir vinir. Aðrir eru sannir vinir og svo er það fjölskyldan í sínum breiða skilning sem alltaf er til staðar, sama hvað. Ég er að verða svolítið þreytt á að vera svona langt frá fjölskyldunni á Íslandi. Er samt ekki tilbúin í neyslu- og skuldapakkann með tilheyrandi vinnubrjálæði og kulda á Íslandi.

Öllum er velkomið að skilja eftir sig spor. Fyrir mér er það kurteisi að láta vita af sér hér í kommentum.

kær kveðja Hrund