Undanfarið er ég búin að vera á jagt (þýð.veiðum) eftir nýjum gleraugum. Fann tvö fín í Profil optik eftir að hafa farið í sjónpróf þar. Fékk umgjarðirnar lánaðar heim svo ég gæti staðið fyrir framan spegilinn og grett mig og brosað og séð hvernig ég tek mig út með öllum þeim svipum sem ég get sett upp, jú og auðvitað að fá það fólk sem þarf að horfa á mig með brillurnar daglega, tækifæri til að segja sína skoðun.
Verðið fannst mér nú heldur hátt eða um 57 þúsund íslenskar!!! En afgreiðslukonan hafði verið mjög sannfærandi þegar hún talaði um að maður ætti ekki að fara neinn milliveg í gleraugnakaupum, mér hafði ekki líkað neinar af ódýru umgjörðunum og ég þyrfti dýrasta glerið því sjónin er slæm og gleraugun yrðu þá allt of þykk ef venjulegt gler væri valið. Ég ákvað að skoða fleiri umgjarðir í annarri búð, Synoptik í von um að finna ódýrari sem mér líkaði. Fann ég þar fín gleraugu en umgjörðin var jafn dýr! En fékk ég að vita að glerið væri mun ódýrara en á hinum staðnum.
Ég fór því yfir til að skila gleraugunum en vá!!! Afgreiðslukonan varð hreint út sagt móðguð og sagði það ómögulega geta verið svona gott gler eins og hún væri að bjóða uppá, þetta væri alveg öruggt hnausaþykk gleraugu sem allt speglaðist í. Svo setti hún upp dæmi hvað það myndi kosta mig á mánuði ef ég veldi að borga þetta á raðgreiðslum, ekki nema 169 á mánuði!!! Og ef ég veldi annað gler yrði það bara 200 kall á mánuði! Bara smátterí, hver finnur fyrir því, auðvitað ætti ég að velja það besta því ég fyndi nú ekki fyrir fimmtíukalli á mánuði. Ég var með umgjörðina úr hinni búðinni með mér og sýndi henni. Já nei nei hún fór mér sko ekki vel, hin var MIKLU betri, já já. Hún ÆTLAÐI að selja mér gleraugun, hún var næstum komin í ham! Þarna stóð ég með sérfræðinginn og var alveg að fara að láta undan, þetta voru jú flott gleraugu og jú maður finnur svosem ekki fyrir fimmtíukallinum. En tókst að rífa mig upp úr því og sagðist vilja kanna hvaða gler þetta væri sem verið væri að bjóða mér uppá, svo kæmi ég bara aftur. Hún lét mig fá upplýsingarnar um glerið dýra sem hún vildi selja mér og ég fór yfir í þarnæstu búð. Glerið sem mér var boðið uppá þar var það sama og í hinni búðinni!!! Já það var súper gott tilboð á því. Svo nú myndu gleraugum kosta mig 33 þúsund íslenskar krónur í stað 57 þúsund, sparnaðurinn því 24 þúsund krónur!!! Auðvitað skellti ég mér á þetta tilboð. Svo var bara eftir að fara yfir í Profil Optik og tilkynna afgreiðslukonunni þar að hún þyrfti ekki að geyma gleraugun.
Skrítið en ég varð hreinlega kvíðin, já hún yrði sko fúl, púha. Mikið rétt, brosið var ekki lengi að hverfa af hennar vörum og viðmótið gjörbreyttist, hún var móðguð!!! Ég fór út með hnútinn í maganum og fattaði þá hvað þetta er fáránlega rangt að láta kúnnan líða þannig! Þetta er sko það sem maður kallar að vera ágengur sölumaður! Ég er svo ánægð yfir að henni skildi ekki takast að selja mér gleraugun! Líka ánægð með að hafa fengið gleraugu miklu ódýrara. 1-0 fyrir Synoptik í dag! Og 1-0 fyrir mér í dag!
25. januar 2008
22. januar 2008
frá tryggingu til félagslegrar ábyrgðar
Umræðuefni hér einn daginn meðal nokkurra var hvort það væri í lagi að svindla á tryggingarfélögunum. Ekki voru allir sammála um svarið þar sem sumir sögðu að það væri alrangt en öðrum fannst í lagi að svindla aðeins. Allir voru þó sammála um að stór tryggingarsvindl væru hreinn glæpur, þar sem fólk gerir sig upp veikindi til að fá milljónir út úr tryggingunum eða til að sleppa við að vinna og fá bætur út lífið. Aumingja það fólk segji ég nú bara.
;)
Ég þekki þó nokkuð vel alveg yndælis fólk sem lenti í því að hjóli dóttur þeirra var stolið. Þau gátu nú farið til tryggingarfélags síns og tilkynnt stuldin og fengið hjólið bætt. Viku síðar fannst hjólið en búið var að rústa því. Ferð til tryggingarfélagsins þá hefði ekki leitt til bóta því hjólið var ekki lengur stolið heldur eyðilagt og tryggingarnar dekka það ekki!!!! Halló! hverju breytir það fjölskylduna hvort það var stolið eða eyðilagt, það gerði jafn lítið gagn í báðum tilvikum....
Í þessu tilviki hefði mér ekki fundist neitt af því að tilkynna það stolið jafnvel þótt það væri fundið aftur.
;)
Mér finnst frekar súrt að vera að borga tryggingar og vita til þess að ef ég þarf á þeim að halda einn daginn, þarf ég líklega að ráða lögfræðing til að vernda minn rétt!!! það er allt of oft sem tryggingarnar reyna að svindla á sínum meðlimum og rétta fram stækkunarglerið svo hægt sé að lesa smáa letrið á blaðsíðu hundraogáttatíu í útprentuninni sem þú áttir að prenta út af netinu en gerðir aldrei og hafðir því ekki hugmynd um að þeir dekka ekki bruna ef þú átt kött eða eitt barnanna reyki eða annað álíka fáránlegt.
;)
Samt er ég nú tryggð bak og fyrir ef ske kynni að ég yrði svo heppin að lenda í einhverju sem ekki er dekkað af smáa letrinu. Fyrir tíma trygginganna þá vorum við tryggð í gegnum fjölskyldu og vini. Það er ekki alveg dautt enn og sér maður aftur og aftur hvernig Pétur og Páll safna saman aurum ef einhver þarf á því að halda. Það virðist mun algengara á fallegu eyjunni sem ég kem frá heldur en í stóra Danaveldinu.
;)
En stígum upp í þyrluna og lítum aðeins á málið frá hærra sjónarhorni. Að koma allri ábyrgðinni yfir á tryggingarfélögin yrði til þess að við misstum ábyrgðartilfinninguna gagnvart náunganum og yrðum smátt og smátt vanhæfir samfélagsþegnar, egóistar sem ekki geta verið þáttakendur í samfélagi. Pétur og Páll hjálpa ekki fólki í vanda því það er sko hlutverk trygginganna eða yfirvalda ef því er að skipta. Hver passar sitt og þarf ekki að standast skil við neinn nema opinbera aðila og fyrirtæki eins og tryggingarfyrirtæki. Já nei það er kannski bara best að hafa smáa letrið áfram og ýta þar með undir að við pössum áfram upp á hvert annað og styðjum vegna þess að okkur finnst við megna það og að þörf sé á stuðning okkar.
;)
Með þessum orðum kveð ég í dag.
16. januar 2008
BESTÅET!
þá er prófinu lokið, og ég náði því!!!!!!! JIIIIIBBBBBÍÍÍÍ!!!!!!
Ég fer ALDREI aftur í mínu lífi í svona próf aftur. Guði sé lof! Eins gott að ég náði, því svona próf vil ég ekki fara aftur í. Þeir sem vilja vita meira um hvernig prófið fór fram er bent á þetta blogg: http://helgaogpalli.blogspot.com/2008/01/mikil-spenna.html. Það er mjög svo skemmtileg færsla og ég hvet ykkur til að lesa hana ;)
Ég var í fríi í gær, daginn eftir prófið þar sem restinn af bekknum var í prófi þá, en var meira og minna niðrí skóla að heppa á hina félagana og vera þar til að fagna með þeim, hvert af öðru sem kom út úr prófi, búin að ná! Af 13 manna hóp, féll einn og erum við því besti bekkurinn sem hefur verið á skólanum. Aldrei hafa eins margir náð þessu prófi! við erum svo stollt ;) held það sé mikið því að þakka að við erum ótrúlega samrýmdur bekkur, mjög hjálpsöm og áhugasöm um að allir nái.
Í dag áttum við að byrja á síðustu önninni. En kennararnir voru veikir, sem betur fer fyrir þá sem voru í prófi í gær, ömurlegt að fara í próf og byrja svo á næsta kafla daginn eftir, við varla búin að eiga jólafrí, hvað þá helgarfrí undanfarið. Á morgun verður víst aftur frí af "tæknilegum ástæðum" hmmmm.... hvaða tæknilegu ástæður gæti það verið?????
Fagnaði frídeginum með verslunarferð til þýskalands, náði þar í ódýran mat og annað smátterí. Þar sem við vorum öll komin heim snemma hóuðum við í Helgu,Palla og syni, Valey og Þórunni og skelltum í eina súkkulaðiköku ásamt pönnsum og höfðum það huggulegt. Mjög góður frídagur verð ég að segja, ég tala nú ekki um þar sem hann var með öllu án samviskubits yfir að vera ekki að læra!
Ég þakka hamingjuóskir á fyrri færslu og tek glöð við fleiri hér ;) I'm the BEST!!! tja allavega nokkuð "GOOD".....
Ég fer ALDREI aftur í mínu lífi í svona próf aftur. Guði sé lof! Eins gott að ég náði, því svona próf vil ég ekki fara aftur í. Þeir sem vilja vita meira um hvernig prófið fór fram er bent á þetta blogg: http://helgaogpalli.blogspot.com/2008/01/mikil-spenna.html. Það er mjög svo skemmtileg færsla og ég hvet ykkur til að lesa hana ;)
Ég var í fríi í gær, daginn eftir prófið þar sem restinn af bekknum var í prófi þá, en var meira og minna niðrí skóla að heppa á hina félagana og vera þar til að fagna með þeim, hvert af öðru sem kom út úr prófi, búin að ná! Af 13 manna hóp, féll einn og erum við því besti bekkurinn sem hefur verið á skólanum. Aldrei hafa eins margir náð þessu prófi! við erum svo stollt ;) held það sé mikið því að þakka að við erum ótrúlega samrýmdur bekkur, mjög hjálpsöm og áhugasöm um að allir nái.
Í dag áttum við að byrja á síðustu önninni. En kennararnir voru veikir, sem betur fer fyrir þá sem voru í prófi í gær, ömurlegt að fara í próf og byrja svo á næsta kafla daginn eftir, við varla búin að eiga jólafrí, hvað þá helgarfrí undanfarið. Á morgun verður víst aftur frí af "tæknilegum ástæðum" hmmmm.... hvaða tæknilegu ástæður gæti það verið?????
Fagnaði frídeginum með verslunarferð til þýskalands, náði þar í ódýran mat og annað smátterí. Þar sem við vorum öll komin heim snemma hóuðum við í Helgu,Palla og syni, Valey og Þórunni og skelltum í eina súkkulaðiköku ásamt pönnsum og höfðum það huggulegt. Mjög góður frídagur verð ég að segja, ég tala nú ekki um þar sem hann var með öllu án samviskubits yfir að vera ekki að læra!
Ég þakka hamingjuóskir á fyrri færslu og tek glöð við fleiri hér ;) I'm the BEST!!! tja allavega nokkuð "GOOD".....
9. januar 2008
segjum það nú bara
já já hvað á ég svo að segja ykkur í dag! þetta var ekki spurning, tja eða hálft í hvoru því þetta er vissulega sett fram sem spurning þar sem hvað kemur fyrir í setningunni. Endar hún þó ekki á spurningarmerki eins og lög segja til um þegar um spurningu er að ræða. Ég tek mér það bessaleyfi að skrifa mína hálft í hvoru spurningu á þennan hátt þar sem um er að ræða spurningu sem ekki er ætlast til að sé svarað. En veltum nú fyrir okkur orðinu bessaleyfi, hvað er það? skildi það finnast í Orðabókinni eða mun orðið vera flokkað undir slangur. hvað þýðir þá slangur er það tökuorð eða hvað. Nú jæja ég er að hugsa um að hætta að bulla svona í ykkur.
Ég hef það bara gott, er í góðu skapi og allt í gúddí. Helga situr hér mér við hlið og skorar á sína landafræðiþekkingu á netinu og bekkjarfélagarnir fylgjast áhugasamir með hér allt í kring. Við erum í "leshóp" hér nokkur úr bekknum, það er að segja að læra saman. Við semsagt förum uppá töflu til skiptis og kennum hinum efnið. Mjög áhrifarík aðferð verð ég að segja. Þetta er allt sem ég hef að segja í bili.
þar til næst.
7. januar 2008
Alexandra Nadía
Afmælisbarn dagsins
Frumburður minn
Alexandra Nadía
14 ára
Frumburður minn
Alexandra Nadía
14 ára

Elsku hjartans gullið mitt sem fæddist 17 mínútur yfir 5 að nóttu til á köldum vetrardegi. Fæddist með mikið hár og svo falleg sem frekast getur verið. það var svo yndislegt að fá hana í hendurnar. Mér fannst heimurinn hafa stöðvast. það skipti ekkert máli nema hún. Vinkonurnar komu í heimsókn, segjandi mér frá lífinu fyrir utan veggi sjúkrahússins, en þær töluðu út í loftið, hvernig var hægt að rúma eitthvað annað en þennan gullmola sem lá svo vært á brjósti mínu, svo örugg og sæl að vera komin í þennan heim? Ég man þegar hún lá 4ra daga gömul í ljósum til að losna við guluna og þá kom það , þá kom sprengingin, ég bara grét og grét, bara af hreinni væntumþykju til þessa varnarlausa stúlkubarns sem lá þarna í hitanum. Mig langaði svo að taka hana út og knúsa hana og aldrei sleppa. Úff en hvert ár síðan þá hef ég þurft að sleppa pínulítið og nú eru ekki mörg ár í að hún verði orðin flugfær.
Hverfisblaðið hér í bæ ætlar að gefa henni rjómatertu í tilefni dagsins. Sætt af þeim finnst mér.
Hún elskar athygli á afmælisdaginn og myndi ekki finnast leiðinlegt að fá afmæliskveðju-sms ;) ;)
Abonner på:
Opslag (Atom)