22. januar 2008

frá tryggingu til félagslegrar ábyrgðar

Umræðuefni hér einn daginn meðal nokkurra var hvort það væri í lagi að svindla á tryggingarfélögunum. Ekki voru allir sammála um svarið þar sem sumir sögðu að það væri alrangt en öðrum fannst í lagi að svindla aðeins. Allir voru þó sammála um að stór tryggingarsvindl væru hreinn glæpur, þar sem fólk gerir sig upp veikindi til að fá milljónir út úr tryggingunum eða til að sleppa við að vinna og fá bætur út lífið. Aumingja það fólk segji ég nú bara.
;)
Ég þekki þó nokkuð vel alveg yndælis fólk sem lenti í því að hjóli dóttur þeirra var stolið. Þau gátu nú farið til tryggingarfélags síns og tilkynnt stuldin og fengið hjólið bætt. Viku síðar fannst hjólið en búið var að rústa því. Ferð til tryggingarfélagsins þá hefði ekki leitt til bóta því hjólið var ekki lengur stolið heldur eyðilagt og tryggingarnar dekka það ekki!!!! Halló! hverju breytir það fjölskylduna hvort það var stolið eða eyðilagt, það gerði jafn lítið gagn í báðum tilvikum....
Í þessu tilviki hefði mér ekki fundist neitt af því að tilkynna það stolið jafnvel þótt það væri fundið aftur.
;)
Mér finnst frekar súrt að vera að borga tryggingar og vita til þess að ef ég þarf á þeim að halda einn daginn, þarf ég líklega að ráða lögfræðing til að vernda minn rétt!!! það er allt of oft sem tryggingarnar reyna að svindla á sínum meðlimum og rétta fram stækkunarglerið svo hægt sé að lesa smáa letrið á blaðsíðu hundraogáttatíu í útprentuninni sem þú áttir að prenta út af netinu en gerðir aldrei og hafðir því ekki hugmynd um að þeir dekka ekki bruna ef þú átt kött eða eitt barnanna reyki eða annað álíka fáránlegt.
;)
Samt er ég nú tryggð bak og fyrir ef ske kynni að ég yrði svo heppin að lenda í einhverju sem ekki er dekkað af smáa letrinu. Fyrir tíma trygginganna þá vorum við tryggð í gegnum fjölskyldu og vini. Það er ekki alveg dautt enn og sér maður aftur og aftur hvernig Pétur og Páll safna saman aurum ef einhver þarf á því að halda. Það virðist mun algengara á fallegu eyjunni sem ég kem frá heldur en í stóra Danaveldinu.
;)
En stígum upp í þyrluna og lítum aðeins á málið frá hærra sjónarhorni. Að koma allri ábyrgðinni yfir á tryggingarfélögin yrði til þess að við misstum ábyrgðartilfinninguna gagnvart náunganum og yrðum smátt og smátt vanhæfir samfélagsþegnar, egóistar sem ekki geta verið þáttakendur í samfélagi. Pétur og Páll hjálpa ekki fólki í vanda því það er sko hlutverk trygginganna eða yfirvalda ef því er að skipta. Hver passar sitt og þarf ekki að standast skil við neinn nema opinbera aðila og fyrirtæki eins og tryggingarfyrirtæki. Já nei það er kannski bara best að hafa smáa letrið áfram og ýta þar með undir að við pössum áfram upp á hvert annað og styðjum vegna þess að okkur finnst við megna það og að þörf sé á stuðning okkar.
;)
Með þessum orðum kveð ég í dag.

6 kommentarer:

Anonym sagde ...

so true so true!
Knús
Eva Björk

Anonym sagde ...

Var ég búin að óska þér til hamingju með bestaaet???
Æi þá geri ég það bara aftur!!!!
TIL HAMINGJU!!!!!!
Kv. af Klakanum
ég

Anonym sagde ...

Ég hef nú heyrt af nokkrum sem safna hér til að hjálpa hinum og þessum en oft eru það svindlarar sem láta leggja bara inn á sinn reikning :-(

Danir styðja líka meira Rauða Kross og þess slags en Íslendingar, eða það held ég allavega, en danir eru líka duglegari með að hafa stór show á sjónvarpsstöðvunum þar sem maður á hringja inn og gefa pening!!

En ég er alveg sammála með að fólk sem svindlar illilega á tryggingarfélögunum eiga bara bágt, eins og t.d. sá sem sagaði af sér hendina bara til að fá pening, djæsus!!!
Og hann valdi meira að segja hægri hendina því það gaf meiri pening....

Söknuðarknús frá Köben
Elísabet

Anonym sagde ...

Tryggingafélögin gera það svo erfitt að sækja rétt sinn að maður gefst upp við tilhugsina. Í vetur þegar Ingunn bakkaði á bíl og ég gaf skýrslu þar sem fram kom að hún var í órétti þá vildu þeir samt semja við tryggingarfélag hins um 50%/50%. Váá hvað ég varð ill og skrifaði til baka og skammaðist. Síðan hef ég ekki heyrt meiri vitleysu um það mál. En ég vil líka hafa það þannig að þegar ég þarf að sækja minn rétt til tryggingafélags þá sé hægt að gera það á heiðarlegum nótum, það finnst mér vanta, samt er ég tryggð í bak og fyrir og nenni oftar en ekki þegar eh er að sækja rétt minn þangað.

Anonym sagde ...

Þetta er satt ! Maður er tryggður fyrir miklu og maður veit ekki einu sinni hverju eins og segir í auglýsingu frá einhverju tryggingafélagi

Er alveg sammála um þetta hjólamál stuldur og eyðilegging er það sama fyrir mér !!

Fullt að fólki fær fullt út úr tyggingum en svo er aðrir sem fá ekki einu sinni bætta framrúðu því það var rauður steinn sem braut hana en ekki grænn !!
Þess vegna mæli ég eindregð með því að fólk kynni sér fyrir hverju það er tryggt það hlítur að vera hægt að setja upp dæmi fyrir hverju maður er tryggður :)

Takk fyrir að leyfa Ólu að vera hjá ykkur í gær

Anonym sagde ...

Góðir punktar hjá þér.
En fatta ekki alveg... af hverju að hafa alltaf þetta smáa letur? Þá meina ég, hvað hafa þessi tryggingafélög að "fela". Mér þætti nú nær að hafa þetta sjáanlegra og þá veit fólk nákvæmlega að hverju það gengur þegar það kaupir tryggingar!! Ég held það viti nú allir að fæstir sæki sér stækkunargler til að geta lesið þetta smá letur!!!

Bestu kveðjur...