20. september 2007

Goldfish Syndrom



Staðreyndir
Ætla má að þessi sjúkdómur hafi verið til frá tímum víkinga.
Hann hefur þó færst í aukarnar í takt við upplýsingasamfélagið og einkennin hafa versnað. Sjúkdómurinn fyrirfinnst aðallega hjá konum.

Rannsóknir benda til að 7 af hverjum 10 konum á aldrinum 20 til 45 ára þjáist af sjúkdómnum,en aðeins 1 af þessum 7 gerir sér grein fyrir því.
Marktæk tengsl hafa fundist milli barnafjölda sjúklings og aldur þeirra annars vegar og hins vegar stig sjúkdómsins.
Eins hefur áhrif á framgöngu goldfish syndrom hvort konan sé útivinnandi og þá hversu marga tíma á viku.

Greining
Hannað hefur verið greiningarpróf sem er það öruggt að viðkomandi getur stólað á réttar niðurstöður og farið með útprent af bæði greiningunni og niðurstöðunni til Tryggingarstofnunnar Ríkisins og sótt þar réttar síns.

Goldfish Syndrom greiningarpróf


1. Ertu kvenkyns?
2. Ertu á aldrinum 20 til 45 ára?
3. Ertu í vinnu eða öðru sem svarar til vinnu?
4. Vinnurðu meira en 20 tíma á viku?
5. Áttu eitt eða fleiri börn?
6. Þværðu þvottinn sjálf?
7. Sérðu um innkaupin?
8. Kaupirðu fötin á börnin?
9. Sérðu um að muna afmælisdaga allra og kaupa gjafirnar?
10. Kaupir þú sjálf jólagjafir?

Svaraðir þú öllum spurningum neitandi?
Þú ert karlamaður

Svaraðir þú minna en 4 spurningum játandi?
Þú ert örugglega karlamaður innst inni

Svaraðir þú milli 4 og 7 spurningum játandi?
Þú þjáist af Goldfish Syndrom. Sóttu um bætur hjá Tryggingarstofnun Ríkisins

Svaraðir þú meira en 7 spurningum játandi
Þetta er allt í lagi, þú mannst hvort eð er ekki á morgun að þú þjáist af Goldfish Syndrom

_______________________________________________

Rannsókn unnin af doktor Hrund, yfirGullfiskur, Gullfiskadeildar Háskóla Íslands

Mig langar að benda á eftirfarandi færslu: Alger Gullfiskur

Kær kveðja

dr. Hrund




16. september 2007

Listar

Ég ætla að tala um lista.
  • það eru listar út um allt hús sem kalla rámri viðarröddu " Hruuund málaðu okkur!!!", "Hruuund mála!", ég hef svosem byrjað á verkinu en það er langt frá lokið.
  • Ég skrifa stundum innkaupalista, en kaupi yfirleitt miklu meira en það sem stendur á listanum og stundum gleymi ég einhverju á listanum og ef ég gleymi listanum heima, kaupi ég bara eitthvað sem mig langar til að kaupa...
  • Ég þarf að fara að skrá Alexöndru á lista því hana langar á efterskole (heimavistarskóla) á næsta ári
  • Ég er að móta í huga mínum lista yfir alla þá hluti sem þarf að gera í húsinu og í kringum það, hann verður flokkaður niður í undirflokka, kannski eftir því hvort um er að ræða málningarvinnu, herbergi eða rafmagnsvinnu, hvort þurfi karlmann í verkið, sérfræðing eða hvort ég geti gert verkið sjálf, þetta er enn á hönnunarsviði...
  • Í skólanum er ég að læra að geyma gögn í lista svo það sé auðvelt að finna þau. það heitir LinkedList.
  • Ég er að búa til lista í tölvunni yfir skemmtilegustu lögin að mínu mati, ef ég eignast einhverntímann mp3 eða ipod eða annað snilldar tæki með USB sem getur spilað tónlist, ætla ég að setja þau þar inn. Mér datt í hug að brenna þau á disk en það er svo gamaldags, ég yrði svo halló með ferðaspilara!!!
  • Ég á lista yfir þá Nokia síma sem mig langar í og skoða annað slagið hvort verðið á þeim sé ekki eitthvað farið að lækka svo ég geti nú farið að skila Nokia símanum sem sonur Helgu á.

Átt þú nokkuð lista?

10. september 2007

Þá er helgin öll

Það styttist í Póllandsferðina. Fundur á föstudaginn. Fór útí skóg í gær að borða matarafgangana úr ísskápnum, hituðum þá í pottum yfir grilli, ferlega huggó og börnin löbbuðu um og skoðuðu ógeðslegar köngulær, ég bara frekar svona þreytt eftir djamm kvöldið áður og laggði mig í bílnum á meðan Steini og dætur fundu hoppipúða á nærliggjandi tjaldvæði. Mér fannst ég ekki þurfa á því að halda eftir dansmaraþon laugardagskvöldsins, þar sem nokkrar kaloríur hafa brunnið við ágætis tónlist.
Rigning hér, svosem ekkert nýtt. Ég á hjóli.

Vitiði hvað ég hlakka mest til við Póllandsferðina??? það er svolítið sem Dísa benti á og er ég farin að sjá sem mikinn kost, það er fyrir mörgum mjög svo sjálfsagður hlutur, en er það sjaldan fyrir mæður. Það er að geta LAGT sig þegar manni LANGAR TIL!!! og sofa eins lengi og manni langar til. það er hrein lúxus vara. Tökum sem dæmi sunnudaginn. Ég kom tja eigum við ekki bara að segja "heim á eðlilegum djammtíma", Steini vakti mig kl. að ég held um átta, já þú last rétt kl. 08:00!!! og svo fram til hálfellevu komu litlurnar til skiptis inn og drösluðust ofanámér og í kringum mig. Þá dró Steini mig í sturtu.Svo byrjaði fjölskyldudagskráin.

7. september 2007

Föstudagurinn langi

Í dag var ég raddlaus, svona hér um bil, og þurfti að nota töluvert mikla orku í að hvæsa út úr mér orðunum.

það var nú engin venjulegur föstudagur í dag, ó nei.
Við Helga og Jette, bekkjarsysturnar sem höfum svo agalega mikinn frítíma, sáum um grill og leiki fyrir alla 3 bekkina í skólanum í dag. Allt frá fjárhagsáætlun með útreiknuðum áhættum og möguleikum, fram til yfirlits yfir hagnað og allt þar á milli, eins og að sjá um skráningu nemendanna, versla, elda, undirbúa leiki og taka myndir. Gekk þetta frábærlega vel og voru kennararnir okkur þakklátir því þetta er venjulega þeirra hlutverk. Missti ég nú af föstudagsbarnum þar sem ég varð að rjúka heim í sturtu.
Raddlaus en samt að blanda geði.

Næsta stopp var á skóladagheimilinu. Þar byrjaði foreldrakaffi kl 14.00 og var semsagt "opið hús" til kl 16:30. Kl 15 var ég komin úr sturtu, búin að bursta burt lyktina af rauðvínsglasinu frá grillinu um morguninn og þvo af mér grilllyktina. Þá hringdi Hafdís, hélt ég væri bara búin að gleyma kaffinu, eða amk hélt Ísabella það því hún var auðvitað miður sín þegar foreldrarnir streymdu inn á slaginu tvö og settust til kaffiborðs með börnunum sínum en hún mátti ekki fá köku fyrr en mamma hennar væri komin. Hafdís ættleiddi hana fyrir mig þar til ég kom og hafði hún þannig möguleika á kökusneið með Rebekku Rut, vinkonu sinni. Kaffi, kaka.
Raddlaus en samt að blanda geði.

Sum ykkar myndu nú hugsa að aumingja raddlausa Hrund hlyti nú að fara heim í bólið með tebolla og trefil um hálsinn. Neibb, sko þetta var óvenjulegur föstudagur sagði ég!

Næsta stopp var sumarveisla leikskólans hennar Emilíönu. Þar áttum við að vera mættar kl. 17. Við tókum með okkur kjötafgang frá grillinu um morguninn, grilluðum og sátum úti í frekar köldu veðri. Horfðum á leiksýningu, leikin af foreldrum, nokkuð fyndin sjón. Kaffi, kaka.
Raddlaus en samt að blanda geði.

Komin heim, bíð eftir tebollanum sem mér finnst ég eiga skilið frá unnustanum fyrir að hafa staðið mig svona vel í dag og sleppt honum við að taka þátt í þessu öllu.

Ef einhverjir lesendur halda að mér hafi nú fundist dagurinn leiðinlegur, þá eru þeir hinir sömu að misskilja þetta. Þetta var erfiður en góður dagur og samviskan er góð.

Er þó með beinverki og illt í hálsinum, búin eftir laaanga viku. Ætli ég fari ekki bara í rúmið þegar ég er búin að laga mér þennan tebolla sjálf og fá smá hita í líkamann aftur.


Þetta er Hrund sem tjáir sig þótt raddlaus sé, úr Syðri Borginni góðu.

3. september 2007

Hrund komin í nýtt hreiður!

Ég er nú flúin frá Blog.central.is! alveg búin að fá nóg af því hvað það klikkar oft! þið sem eruð með link á bloggið mitt, ættuð því kannski að uppfæra hann...

Nýnemarnir byrjuðu í dag, bara gaman að sjá ný andlit hér.

Gestir frá Klakanum á miðvikudaginn.

Steini á næturvöktum þessa vikuna.

Ég er að verða ömmusystir í annað sinn ;)
(Vala Brynja dóttir Siggu systir er nú að framleiða systkyni handa Ylfu Rán Yfirsnúllu).

Steini að verða móðurbróðir næstu daga.
(Ragnhildur systir hans að prófa þetta í fyrsta sinn)



Hrund