Ég er nýútskrifaður montrass með 12 í einkun( af 12 mögulegum). Þið sem ekki þolið montrassa getið bara snúið ykkur í hina áttina þegar þið rekist á mig út á götu þar sem rigningin myndar polla í nasaborum mínum.
Ég er léttari. Léttari í skapi, léttari í lund, léttari á mér, léttari líkamlega. Mér er bara mikið létt.
Daginn fyrir útskrift fékk ég alveg hreint frábæra útskriftargjöf. Það var hvorki meira né minna en hún Valdís systir sem kom mér algjörlega á óvart. Það var svo frábært. Vildi bara að hún hefði stoppað leng... tja eða bara ekkert farið aftur!! Emilíana sem hefur ekki hitt hana í eitt ár og 8 mánuði, ætlaði að gleypa hana! hún mátti ekki sjá af henni, ég mátti ekki fara með Valdísi út í búð, þá sagði hún " þú mátt ekki keyra hana langt burt". og svo krafðist hún þess að fá að fara með. Hún sagði í leikskólanum að hún væri hin mamma sín og kallaði hana það líka hér heima því hún mundi ekki nafnið fyrst um sinn. Hún sagði við leikskólakennarann," den mor går i skole men er færdig og den mor passer mig" eða á íslensku" þessi mamma mín er í skóla en er búin núna og þessi mamma mín passar mig"!
Hvað heitir reception á íslensku? hmmm....(ég fékk þessa líka fínu íslensku orðabók í útskriftargjöf, en sé að ég þarf að safna mér fyrir dansk-íslenskri líka...). Anyways. semagt skólinn hélt svona reception þar sem diplómar voru afhentir,ræður haldnar og léttar veitingar í boði. Eigandi fyrirtækisins sem við Jette unnum verkefnið fyrir hélt óvænta ræðu og hrósaði þar okkur meðal annars, skólastjórinn nefndi útlendinginn sem fékk 12 og veitingarnar voru góðar.
Útskriftarpartý á Loftinu með Helgu. Fengum nokkrar hendur lánaðar til aðstoðar og þar mætti helst nefna Petu sem var hjálpsamari en leyfilegt er og Dísu sem stóð í stórræðum í tapas gerð og annarri snittugerð og var útkoman stórglæsileg og bragðgóð! Ég skemmti mér konunglega og þakka ykkur öllum þúsund og milljón sinnum fyrir mig!
Partýið var líka kveðjupartý þar sem Helga er að fara að bjarga Íslandi undan gjaldþroti. Hún er og mun alltaf vera hugrakkur og mikill kvenskörungur og gæðablóð og veit ég að henni á eftir að farnast vel og svo þegar hún er orðin leið á að vera forseti, ráðherra og seðlabankastjóri, þá slekkur hún bara ljósin og kemur hingað aftur. En þangað til þá mun nú vera hálf tómlegt um að litast í bænum. Minna hlegið, minna fíflast, minna blaðrað, færri kleinur bakaðar, færri pönnsur, minna rauðvínssötur og færri spil.
Verið sæl og blessuð að sinni.
Hrund kerfisfræðingur kveður
7. december 2008
30. oktober 2008
lífsmark
Ég hef bara haft lítið að segja.
Jú jú það kemur alveg fyrir.
Annars er það að frétta að það er að verða búið að leggja drein í kringum kjallaraherbergið sem áður var gestaherbergi og er komandi Alexöndru herbergi. Það verður mikill munur þegar það er komið í lag og skvísan getur flutt niður og litlurnar fengið hvert sitt herbergið og ég fengið hjónaherbergið. Hef nú hugsað mér að deila því með mínum heittelskaða. Annars finnst mér voða notalegt að hafa vegg á þrjá kanta og kúra þar með Steina. já og Gucci.
Hér er lítið gert annað en að vinna í lokaverkefninu. Sofa, borða og horfa á Dagvaktina. Frábær síðasti þáttur, alveg hreint. Ég býð svo spennt eftir þeim næsta.
Annars var ég að spá í hvort við Íslendingar ættum ekki að taka okkur saman og fara í heimsókn til frændfólks okkar í Færeyjum. Þetta virðist vera hið vænsta fólk sem styður okkur meira en við styðjum hvert annað... Það væri nú huggulegt að kíkja í kaffi til þeirra og þakka þeirra ótrúlega gjafmildi.

Abonner på:
Opslag (Atom)