Uppáhaldsfrumburðurinn minn var keyrð niður í dag! Og helv. ökuníðingurinn stakk af! hún var að hjóla yfir götu niðrí miðbæ þegar bifreið ekur á framhjól hennar með þeim afleiðingum að hún kastast af hjólinu og hún veit ekki einu sinni hvernig en endar hinum megin við bílinn, þ.e. þeim megin götunnar sem hún var lá leiðinni á. Bílstjórinn keyrir bara í burtu!!! Dóttur minni sem fannst þetta eitthvað pínlegt, rauk upp og flýtti sér sinnar leiðar áður en einhver færi að snúa sér að henni. Nú getur hún varla stigið í fótinn svo illt er henni í hnénu. Og ég verð svooooooo REIÐ! Bílstjórinn heppinn að ég skildi ekki hafa verið nálægt, ég hefði lúbarið hann, eða rústað bílnum hans, já eða bara sagt honum að hann eða hún væri asni,ökuníðingur og fáviti að keyra í burtu, algjörlega vanhæfur samfélagsþegn sem veldur tjóni á unglinum og lætur sig engu varða um það. Og hana nú..... þá er búið að losa um þetta. púff.
Frábær helgi í alla staði. Á föstudaginn skelltum við Steini okkur á Indiana Jones. Ákaflega notaleg tilbreyting að gera eitthvað saman og myndin var hin fínasta afþreyjing og sætin í bíó ótrúlega góð,hægt að leggja þau aftur. Laugardagur og tvöfalt barnaafmæli útí skógi, veðrið sem best verður á kosið. Sunnudagur og barnaafmæli, pylsur og marengstertur og fínt fólk eins og fyrri daginn, sólskin og gott.
Margt skemmtilegt framundan svo engin tími til að vera með í maganum yfir prófverkefnum sem eru í fullum gangi núna. Tónleikar framundan, sumar show með einkafrumburðinn sem módel, vinnuföstudagur í leikskólanum og sumarhátið í 6 ára bekknum með grilli og fjöri. Kjallarinn í þurrkun og garðurinn verður þarna ennþá þegar fer að róast hjá mér.
Með kærri kveðju
Hrund ;)
26. maj 2008
24. maj 2008
júrovision og brúðkaup
Við Íslendingar verðum nú að standa saman og vera þakklát Eurobandinu fyrir að hafa staðið sig svo vel að komast áfram í kvöls. Partýin munu verða líflegri og Dominos mun mala gull. Því hærra sem Íslendingar svo ná í kvöld því meiri verður gleðin á skemmtistöðum Reykjavíkurborgar og því meira græða barirnir í sölu áfengis. Því meiri skemmtun fær fólk út úr kvöldinu og því meiri gleði og þjóðarstollt er meðal fólks. Það er því ekki lítil pressan á fulltrúum okkar í söngvakeppninni.
Brúðkaup Joachim taka tvö í dag. Haldið í næsta bæ. Það er nú ekki svo langt síðan taka 1 var. man það nú eins og það hafi gerst í gær. Alexandra stórglæsileg og elskuð af dönum og mikil upplifun, ég nýflutt til Konungsríkisins.
Nú hefst júróvision eftir 6 mínútur. þarf að koma mér í stellingarnar.
Brúðkaup Joachim taka tvö í dag. Haldið í næsta bæ. Það er nú ekki svo langt síðan taka 1 var. man það nú eins og það hafi gerst í gær. Alexandra stórglæsileg og elskuð af dönum og mikil upplifun, ég nýflutt til Konungsríkisins.
Nú hefst júróvision eftir 6 mínútur. þarf að koma mér í stellingarnar.
Abonner på:
Opslag (Atom)