20. september 2007

Goldfish Syndrom



Staðreyndir
Ætla má að þessi sjúkdómur hafi verið til frá tímum víkinga.
Hann hefur þó færst í aukarnar í takt við upplýsingasamfélagið og einkennin hafa versnað. Sjúkdómurinn fyrirfinnst aðallega hjá konum.

Rannsóknir benda til að 7 af hverjum 10 konum á aldrinum 20 til 45 ára þjáist af sjúkdómnum,en aðeins 1 af þessum 7 gerir sér grein fyrir því.
Marktæk tengsl hafa fundist milli barnafjölda sjúklings og aldur þeirra annars vegar og hins vegar stig sjúkdómsins.
Eins hefur áhrif á framgöngu goldfish syndrom hvort konan sé útivinnandi og þá hversu marga tíma á viku.

Greining
Hannað hefur verið greiningarpróf sem er það öruggt að viðkomandi getur stólað á réttar niðurstöður og farið með útprent af bæði greiningunni og niðurstöðunni til Tryggingarstofnunnar Ríkisins og sótt þar réttar síns.

Goldfish Syndrom greiningarpróf


1. Ertu kvenkyns?
2. Ertu á aldrinum 20 til 45 ára?
3. Ertu í vinnu eða öðru sem svarar til vinnu?
4. Vinnurðu meira en 20 tíma á viku?
5. Áttu eitt eða fleiri börn?
6. Þværðu þvottinn sjálf?
7. Sérðu um innkaupin?
8. Kaupirðu fötin á börnin?
9. Sérðu um að muna afmælisdaga allra og kaupa gjafirnar?
10. Kaupir þú sjálf jólagjafir?

Svaraðir þú öllum spurningum neitandi?
Þú ert karlamaður

Svaraðir þú minna en 4 spurningum játandi?
Þú ert örugglega karlamaður innst inni

Svaraðir þú milli 4 og 7 spurningum játandi?
Þú þjáist af Goldfish Syndrom. Sóttu um bætur hjá Tryggingarstofnun Ríkisins

Svaraðir þú meira en 7 spurningum játandi
Þetta er allt í lagi, þú mannst hvort eð er ekki á morgun að þú þjáist af Goldfish Syndrom

_______________________________________________

Rannsókn unnin af doktor Hrund, yfirGullfiskur, Gullfiskadeildar Háskóla Íslands

Mig langar að benda á eftirfarandi færslu: Alger Gullfiskur

Kær kveðja

dr. Hrund




20 kommentarer:

Anonym sagde ...

Hæ yfirgullfiskur. Ætlaði bara að minna þig á að þú ert alveg frábær.
Kveðja Hafdís

Anonym sagde ...

oh takk! ertu til í að segja mér það daglega því ég á það til að gleyma því...

Anonym sagde ...

Man ekki hvað ég ætlaði að kvitta og segja frá :S

Knús Eva meðlimur af gullfiska syndrome stuðningsfélaginu.

Helga Hin sagde ...

Hrund... hmm... hver er það aftur?

Anonym sagde ...

Hefur fjölgað hjá Ragnhildi?

Anonym sagde ...

það er mögulegt að skrifandi stundu að það hafi fjölgað um eins og einn keisara eða keisarynju

Anonym sagde ...

Loksins kom sjúkdómagreining á mig!!!
Takk, elsku Hrund mín fyrir að skýra það út fyrir mér af hverju ég labba inn í eldhús að ná í eitthvað og þegar ég er komin þangað inn man ég alls ekki hvað ég var að ná í!!!
Vona að ég fái annað hvort öryrkjabætur eða lyf við þessu ;-)
En man eflaust ekkert eftir því á morgun að sækja um það!!!!
Ég sem hef alltaf haldið að þetta væri bara stress!!!!!!
Kossar og knús til ótrúlega skemmtilegs bloggara!!!!

Anonym sagde ...

Hélt að ég væri búin að kvitta hér enn það var ekki, verðum við ekki að segja að ég þjáist að þessu syndromi líka. Annars hélt ég alltaf að ég væri með bulimiu og alsheimer en ég man það ekki alveg.

knus

( var ég kanski búin að skrifa það? æ man ekkert)

Anonym sagde ...

Ég er algerlega laus við þennan, að því er virðist, hræðilega sjúkdóm og minni þig hér með á að það er kominn tími á nýtt blogg ;)
Góðar stundir.
Hafdís minnuga.

Anonym sagde ...

HÆ hæ :)
Tá er ég búin ad færa síduna tína hjá mér :)
Vona ad tér hafi gengid áleidis med tad sem vid ræddum.
Knús

Anonym sagde ...

Þetta er frábær greining hjá þér......... ertu viss um að þú sért í réttu námi????

Hils pils af Klakanum

ég

Anonym sagde ...

Jæja, dr. Gullfiskur!!
Ertu búin að gleyma því að þú sért með bloggsíðu??
Langar í nýjar fréttir!!
Knús frá mér í Köben sem yfirtók þinn titil sem yfirgullfiskur í gær ;-)

Híalín sagde ...

ÓMG segir, fiskurinn sjálfur.....

Híalín sagde ...

kann ekkert á þetta ......
hialin er FHS

Anonym sagde ...

Ég hélt einmitt líka að ég væri búin að kvitta, en er greinilega með sjúkdóminn. Er til eitthvað við þessu, eða á maður bara að reyna að gleyma að maður sé með hann.
Kær kveðja
Dísa

Anonym sagde ...

Svei mér þá held að konan sé bara búin að gleyma blogginu

þessi sem er ekki heldur í bloggstuði

Anonym sagde ...

Ef þetta bloggleysi er einhver aðferð til að fá mann til að kvitta þá er hún hér með að virka!!
Og svo áfram með smjörið, við viljum fréttir! Við viljum fréttir!.......

Kv. Stóra systir í norðri

Anonym sagde ...

til lykke med prinsess Ísabellu i dag, knus

Anonym sagde ...

Hrund er greinilega langt leidd með goldfish syndrome! Er hún alveg búin að gleyma blogginu sínu!

Takk fyrir æðislega helgi Hrund :) Sú helgi gleymist sko ekki í bráð ;)

Knúsíknús
Eva

Anonym sagde ...

Hæ, sæta!!
Til hamingju með stóru stelpuna þína!!!