Það styttist í Póllandsferðina. Fundur á föstudaginn. Fór útí skóg í gær að borða matarafgangana úr ísskápnum, hituðum þá í pottum yfir grilli, ferlega huggó og börnin löbbuðu um og skoðuðu ógeðslegar köngulær, ég bara frekar svona þreytt eftir djamm kvöldið áður og laggði mig í bílnum á meðan Steini og dætur fundu hoppipúða á nærliggjandi tjaldvæði. Mér fannst ég ekki þurfa á því að halda eftir dansmaraþon laugardagskvöldsins, þar sem nokkrar kaloríur hafa brunnið við ágætis tónlist.
Rigning hér, svosem ekkert nýtt. Ég á hjóli.
Vitiði hvað ég hlakka mest til við Póllandsferðina??? það er svolítið sem Dísa benti á og er ég farin að sjá sem mikinn kost, það er fyrir mörgum mjög svo sjálfsagður hlutur, en er það sjaldan fyrir mæður. Það er að geta LAGT sig þegar manni LANGAR TIL!!! og sofa eins lengi og manni langar til. það er hrein lúxus vara. Tökum sem dæmi sunnudaginn. Ég kom tja eigum við ekki bara að segja "heim á eðlilegum djammtíma", Steini vakti mig kl. að ég held um átta, já þú last rétt kl. 08:00!!! og svo fram til hálfellevu komu litlurnar til skiptis inn og drösluðust ofanámér og í kringum mig. Þá dró Steini mig í sturtu.Svo byrjaði fjölskyldudagskráin.
10. september 2007
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
7 kommentarer:
he he þekki nú þennan mömmubandara MJÖG VEL.
Haldið þið nú áfram að læra dúllurnar mínar :)
Kveðja Hafdís
haa!!! hvaða mömmubrandara...
Veistu hvað ég er viss um að í polen turen þá verður þú vöknuð fyrst af öllum og leyfir okkur hinum ekki að leggja okkur þagar okkur langar til. Ekki nema að Steini farið að æfa þig smá með því að leyfa þér að sofa klukkutíma lengur um hverja helgi og leggja þig á ýmsum tímum.
Hlakka til að hitta ykkur á föstudaginn.
Fyrirlesarinn
He he já mömmubranarinn, er það ekki þegar feður voga sér vekja mæðurnar eftir laaaangt djamm? Það kallast mömmubrandari....eða var það þegar börnin manns geta ekki hangið í feðrum sínum eftir laaaaangt djamm og koma og brölta á manni eins og faðir þeirra hafi borgað þeim fyrir það?
Æ ég man það ekki, man bara að mömmubrandarinn er frekar fyndinn.
Hlakka til að hitta þig næst.
vonast mjøg mikid eftir ad sja thig i kørfu i kvøld!!!
kv. dagny
Jæja, tá er ég loksins búin ad breyta tér inn á mínu bloggi.
Get bædi kennt gleymsku um ad tad hafi ekki gerst fyrr og svo ad mér tókst endalaust ad gera einhverjar stafsetningarvillur og tar med komst tú ekki inn :-(
Ég ætladi ad hringja í tig á morgun til ad fá rétta adressu en tókst svo ad finna tig í gegnum google ;-)
Svo nú sleppurdu vid ad fá upphringingu á morgun, nema náttúrulega ad tú turfir ad brjóta saman tvott, láttu mig tá vita!!!
Oh, my, ad verda vakin kl 8 eftir djamm!!!!!!!!!!
Ég fór á djammid med Láru og Svøvu á laugardaginn og ef einhver hefdi dirfst ad vekja mig kl 8 hefdi sá sami verid daudur!!!!!!!!!!
Langar med til Póllands :-(
Ó mæ god!!!! Kannast við þetta!!!
Góða ferðina til Póllands..... vona að þú sofir nú ekki allan tímann....... að þú náir nú að versla eitthvað af viti líka ;o)
Hils pils;
ég
Send en kommentar