Ég er nú flúin frá Blog.central.is! alveg búin að fá nóg af því hvað það klikkar oft! þið sem eruð með link á bloggið mitt, ættuð því kannski að uppfæra hann...
Nýnemarnir byrjuðu í dag, bara gaman að sjá ný andlit hér.
Gestir frá Klakanum á miðvikudaginn.
Steini á næturvöktum þessa vikuna.
Ég er að verða ömmusystir í annað sinn ;)
(Vala Brynja dóttir Siggu systir er nú að framleiða systkyni handa Ylfu Rán Yfirsnúllu).
Steini að verða móðurbróðir næstu daga.
(Ragnhildur systir hans að prófa þetta í fyrsta sinn)
Hrund
3. september 2007
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
15 kommentarer:
Velkomin á nýtt svæði. Efast ekki um að það verður jafn gaman að lesa pistlana þína hér.
knus
úúú... komnir 10 á teljarann!
Þetta er bara fín ný síða, hafðu það gott, knús Þöll
Sakna þín í skólanum. Á ekkert að sýna síg? Það er miklu betra að vera HÉR og blogga!
Til hamingju með nýju síðuna þína Hrund mín.
Vá flott síða og til hamingju að vera laus við blog.central :)
Knús Hafdís
ekkert sma flott sida... eins look a blogginu og eg var med einu sinni ;)
alltaf gaman ad lesa thad sem thu skrifar svo endilega vertu jefn dugleg og eg kikji oft...
kv. dagny
Jæja, vinan, bara búin að yfirgefa mig á blog.central.is :-(
Er reyndar alveg sammála þér, reyndi í þrígang að skrifa færslu í fyrradag og hún hvarf alltaf!!!
Þú ert ekki gömul, Hrund mín en ég veit hvað þú meinar.
Hér heima virka heilasellurnar heldur ekki alltaf og eins og í dag þegar ég var spurð hvenær ég færi heim var svarið "Þegar ég er farin að röfla í símann og hef ekki hugmynd um hvað þeir spurðu um eða hvað ég sagði!" gerðist snemma :-(
Held áfram að fylgjast með þér hér inni og breyti linkinu á minni síðu!!
Flott síða hjá þér. Er búin að breyta linknum á þig og hlakka til að fylgjast með þér á þessari síðu.
Kv,
Dísa
Kvitterí frá mér
Er ég sú eina sem sé teljarann á vitlausum stað? Hann birtist yfir fyrirsögninni á blogginu en á að vera undir linkalistanum? Við verðum eitthvað að kíkja á þetta Hrund mín!
Heyrðu, endilega skoðið þetta með teljarann. Smá pirrandi sko.
Ótrúlegt hvað allt getur safnast á sama daginn og ekki betra að vera raddlaus, góðan bata,,,,
Ég las nú bara tvær fyrstu línurnar í nýjustu færslunni þinni, en heitir þetta ekki bara að vera orðlaus, en ekki raddlaus? :)
teljarinn kemur rettur hja mer
Send en kommentar