- það eru listar út um allt hús sem kalla rámri viðarröddu " Hruuund málaðu okkur!!!", "Hruuund mála!", ég hef svosem byrjað á verkinu en það er langt frá lokið.
- Ég skrifa stundum innkaupalista, en kaupi yfirleitt miklu meira en það sem stendur á listanum og stundum gleymi ég einhverju á listanum og ef ég gleymi listanum heima, kaupi ég bara eitthvað sem mig langar til að kaupa...
- Ég þarf að fara að skrá Alexöndru á lista því hana langar á efterskole (heimavistarskóla) á næsta ári
- Ég er að móta í huga mínum lista yfir alla þá hluti sem þarf að gera í húsinu og í kringum það, hann verður flokkaður niður í undirflokka, kannski eftir því hvort um er að ræða málningarvinnu, herbergi eða rafmagnsvinnu, hvort þurfi karlmann í verkið, sérfræðing eða hvort ég geti gert verkið sjálf, þetta er enn á hönnunarsviði...
- Í skólanum er ég að læra að geyma gögn í lista svo það sé auðvelt að finna þau. það heitir LinkedList.
- Ég er að búa til lista í tölvunni yfir skemmtilegustu lögin að mínu mati, ef ég eignast einhverntímann mp3 eða ipod eða annað snilldar tæki með USB sem getur spilað tónlist, ætla ég að setja þau þar inn. Mér datt í hug að brenna þau á disk en það er svo gamaldags, ég yrði svo halló með ferðaspilara!!!
- Ég á lista yfir þá Nokia síma sem mig langar í og skoða annað slagið hvort verðið á þeim sé ekki eitthvað farið að lækka svo ég geti nú farið að skila Nokia símanum sem sonur Helgu á.
Átt þú nokkuð lista?
6 kommentarer:
Úff... mér finnst ég eitthvað svo skipulagslaus eftir að hafa lesið þetta um listana þína. En jú, einhverntímann var ég búin að gera lista yfir það sem ég ætlaði mér að gera áður en ég dey... held reyndar að hann hafi aðalega innihaldið lista yfir þau lönd sem mig langaði til.
Ég er nú bara algjörlega listalaus þessa dagana, en þarf að bæta úr því.
Knús af skaganum
fullt af listum hér mín kæra
knus
Oh, ég hata lista!!!!
Ég er með milljón lista og næ aldrei neinu af þeim svo ég verð bara enn stressaðari en ef ég ætti enga lista!!!!
Á maður ekki bara að lifa lífinu eins og það kemur svo maður verði ekki stressaður???
Hehehe :-) Kv Þöll
mæli bara ekki með nokia 6300, myndavélin er glötuð...
Svala á sony e og líka með 2 megapxl og sú myndavél er mikið mikið betri... + hljómgæðin eru betri í SE.
tek það fram að ég er nokia manneksja en varð fyrir vonbrigðum með þennan.
Send en kommentar