Bara stutt kveðja til að láta ykkur vita að ég lifði haustfríið af-auðvitað! spurning hvort ég lifi tímann af fram að vetrarfíi...
Ég biðst velvirðingar á því að kommentakerfið hefur legið niðri. Reyndi að setja inn nýtt kerfi en það gekk ekki og eftir mikið stúss tókst mér að setja aftur upp það gamla!
Áttum góða daga í Kaupmannahöfn, túristuðumst meira en öll þau ár sem við bjuggum þarna og túristuðumst við þó slatta þá með gestum okkar og einnig á sunnudögum þegar engar búðir voru opnar...
Skilaverkefni á morgun. Póllandsferð framundan, búin að skrifa 8 síður en er aðeins búin að svara spurningu 1 af 4 og þó ekki alveg búin að svara henni, því formálann vantar enn.
Klara liggur hér samlita lyklaborðinu og horfir á mig blíðum augum, malandi. Já köttur númer tvö í ár er loks komin með nafn. Ísabella og Alexandra hafa heiðurinn af því. Ég hefði nú heldur viljað kalla hana Kolfinnu ( hugmynd frá Hafdísi þessum snilldarhaus!), en dætrunum leyst ekki á það.
Kveðjan bara alveg að verða löng....
þar til næst
bless bless og ekkert stress ;)
21. oktober 2007
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
11 kommentarer:
Til hamingju með kvitteríkvittið!
Ég vil benda á að engum leist á mína nafnahugmynd.
Ég stakk uppá nafninu Kisa; mér fannst það passa best þar sem dýrið er óttalegur köttur.
Þessi hugmynd átti þó ekki uppá pallborðið hjá ríkjandi kvennmeirihlutanum á heimilinu.
Steini
Blogglestrarkvitt :)
Gangi tér vel!!!
Kær kvedja
Steini minn þú verður nú að fara að gera eitthvað í þessum kvennameirihluta á heimilinu, Annað hvort að búa til nokkra stráka eða eignast tengdasyni sem fylga þér að málum.
Hrund mín gangi þér vel með verkefnið og hlakka til að hitta þig eftir rétt rúma 3 sólarhringa í ferðastuði
kvitt kvitt og góða ferð til Póllands :)Dagga
Æi grey Steini þarf ekki að eignast tengdasyni. Ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda.
Frekar skal ég skipta við hann á börnum við og við til að jafna kynjahlutföllinn á heimilunum
kv. Ragnhildur
Vona að þið séuð komnar heilar á höldnu til Póllands og að þið eigið eftir að skemmta ykkur konunglega!!!!
Hlakka til að heyra ferðasöguna!!!
Kannast við þetta með kynjaskiftin á heimilinu, hjá mér eru það bara 2 karlmenn, 4 og 13 ára svo ég ræð enn ;-)
Knús!!
Þetta er lengsta stutta kveðja sem ég hef á ævinni séð!!!!
Góða ferð til Póllarríkis!!!
ég
Hæ og takk fyrir síðast, rosa gaman að sjá ykkur öll! Til hamingju með nýja kisu, æði. Góða ferð til Póllands, knús, Þöll og fj.
Góða ferð til Póllands,
Knús
Dísa
Góða skemmtun í Póllandi, hvenær ferðu og hvað verður þú lengi??
Hildur
Send en kommentar