Ein ekki í bloggstuði.
Hef verið slegin yfir missi kunningjakonu minnar og bloggvinkonu, hennar Lindu Bjarkar sem missti hann Ása sinn úr krabbameini. Hvað lífið getur verið ósanngjarnt. Elsku Linda, þú átt alla mína samúð, ég vildi að ég gæti gert meira en svo.
Mér er kallt þessa dagana og finnst brotið á eðli mannsins með því að halda öllum plönum áfram þrátt fyrir myrkur.
Ég þakka þó sniðugum mönnum fyrir að hafa fundið upp á jólavertíðinni, sem lýsir rafmagnsljósum í myrkrinu og stuðla að kósýheitum og fjölskylduhittingi.
Það dýrmætasta sem ég á er Steini og stelpurnar. Ég trúði eitt sinn að vinirnir væru fjölskyldan sem maður veldi sér sjálfur. En vinir eru vinir og sumir ekki einu sinni sannir vinir. Aðrir eru sannir vinir og svo er það fjölskyldan í sínum breiða skilning sem alltaf er til staðar, sama hvað. Ég er að verða svolítið þreytt á að vera svona langt frá fjölskyldunni á Íslandi. Er samt ekki tilbúin í neyslu- og skuldapakkann með tilheyrandi vinnubrjálæði og kulda á Íslandi.
Öllum er velkomið að skilja eftir sig spor. Fyrir mér er það kurteisi að láta vita af sér hér í kommentum.
kær kveðja Hrund
20. november 2007
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
10 kommentarer:
Erfitt að finna út úr þessu kvittkerfi?
svona gerirðu:
1) skrifaðu komment í gluggann, mundu eftir nafninu þínu
2) merktu við anonym
3) ýttu á "udgiv din kommentar"
þetta ætti að virka ;)
Kveðja Hrund
Talandi um sniðuga menn og jólin. Castró á Kúbu frestaði eitt sinn jólunum því það hentaði honum betur... eða svo heyrði ég. Er það ekki hámark snilldarinnar. En eins gott að almúginn getur ekki frestað jólunum því þá væru ansi margir sem frestuðu þeim um einn mánuð eða svo. Allavega hef ég heyrt allt of marga (og þá yfirleitt konur... eða kannski bara alltaf.. hmm..) tala um að þær séu "ekki tilbúnar" fyrir jólin. Þá líklega eiga þær eftir að þrífa fataskápana að innan og ég veit ekki hvað og hvað. Hjá mér koma jólin á sínum tíma. Alltaf sama dag hvert ár hvort sem eitthvað er búið að þrífa eða ekki. Eins gott líka.
Sjáumst á morgun... pældu í því; við höfum ekki hittst í heila 4 daga!
Fínt blögg ástin. Gaman að lesa.
Rétt hjá Helgu:
http://www.mca.k12.nf.ca/Christmas/cuba.htm
Adios...
Hæ hæ
kvitt kvitt
Harpa
Nei, það væri sko ómögulegt að flytja jólin. Þín jól yrðu þá kannski í janúar, Helgu í júlí, mín í Desember, Þórunnar í apríl, Evu í októver og svo framvegis....það yrði brjálæði að halda utan um hvenar ætti að senda hverjum jólakort og svo væri maður ALLTAF í jólaboðum he he he.
En á móti gætum við samnýtt jólatréin og jólaskrautið :)
Hefur einhver áhuga á að kaupa 150cm jólatré skreytt með rauðu og gylltu fyrir lítið....gæti verið auglýsingar sem maður rækist oft á :)
Sem betur fer er maki manns besti vinurinn sem maður á og hann og börnin dýrmætust. Annars væru hlutirnir ekki eins og manni finnst þeir eigi að vera amk.
Ísland verður á sínum stað þegar þar að kemur :)
Eigðu góðan dag.
Kveðja Hafdís í smá jólaspegúleringum um "afleiðingar" flutninga á jólunum.
Hey! talandi um flutning á jólum; gæti maður stundað útflutning á jólunum? Bara hugmynd að aukabúgrein!
Ég harðneita að hafa mín jól í Október! Kannski í lok Janúar svo ég nái útsölunum LOL
Knús Hrundin mín :D
tja þótt tveir hafi gleymt að skrifa undir þykist ég þekkja komment frá Steina sem er mikið inní sögu og hver ætti annars að kalla mig ástina sína??? kommentið hér rétt fyrir ofan er alveg hreint hundrað prósent hún Eva því hún er sú eina sem kallar mig Hrundina sína ;)
Helga og Hafdís,ég segji nú bara Jóla hvað!!!
Ég kíki næstum daglega inn á bloggið hjá þér en kvitta ekki alltaf.
Það er erfitt að vera fjarri fjölskyldunni sinni en það er bara frekar erfitt að gera sér glaðan dag með börnunum hér þar sem allt er svo dýrt og að kaupa húsnæði er rugl. Matur sími rafmagn og allt hitt að hækka. En eins og þú bendir á er vont að hafa ekki sína nánustu (og gellurnar þínar úr Hagaskóla) hjá sér. Ég sá Hildi um daginnn og varð hugsað til þín. Hvort þú vildir ekki vera í bílnum með mér og veifa henni. En hafðu það gott sæta, ég hringi í þig úr krónusíma í köben þegar ég er þar. Knús og kossar.
Skagamærin í dýragarðinum
Hæ, hæ!
Best að sýna smá kurteisi og kvitta :o)
Ég er nú komin í smá jólafíling en er að reyna að halda honum niðri allavega til mánaðarmóta. Er meira að segja að spá í að byrja að baka, bara verst að þá þarf að baka aftur áður en jólin koma :o/
Ég er alveg sammála um þetta með fjölskylduna og vinina. Og það eru ekki allir vinir bestu vinir!!!
Vonandi sjáumst við fljótlega. Ég er búin að vera á leiðini til þín ansi lengi.
Knús sæta mín :o)
Send en kommentar