22. december 2007

Gleðileg jól kæri lesandi

Þá fer hin árlega jólahátið bráðum að ganga í garð.
í um það bil mánuð undirbúum við þessa hátíð sem yfirleitt varir í nokkra daga. Með sameiginlegum táknum eins og jólaseríum, skrauti í nokkuð formföstu útliti ( rautt, glimmer, kúlur, jólasveinar og stjörnur) og tónlist, byggjum við upp stemningu sem við (næstum) öll tökum þátt í. Hvað jólin svo fjalla um í smáatriðum er misjafnt frá fjölskyldu til fjölskyldu.
Sumir þrífa gardínur, veggi, skápa að innanverðu, baka 6 tegundir af smákökum, kaupa húsgögn, nýtt á rúmin, ný föt og náttföt. Aðrir slökkva ljósin, kveikja á rauðum kertum og baka eina tegund með börnunum. Sumir gera mikið úr jólunum, sumir varla neitt en flestir gera eitthvað.
Áður fyrr svaf ég ekki vel á jólunum ef ég vissi af skítugri hnífaparaskúffu eða róti í fataskápnum. Ég stressaði ótrúlega mikið fyrir jólin og allt átti að vera fullkomið. Með árunum, og börnunum hef ég minnkað þetta mikið. Ég held mig við eina tegund af smákökum og hreint á rúmin en ég er hætt að strauja af rúmunum og ég tek sko ekki lengur til í skápunum. ( nema virkilega sé þörf á til að geta lokað honum!!) Ég vil auðvitað hafa allt fínt og hreint í kringum mig, en jólin verða notaleg og góð þrátt fyrir að rifsberjagelið sé af annarri tegund en "den gamle fabrik" og það liggji þvottur í eina vél í óhreinatauinu.
Ég vona að þið njótið öll jólanna, hvert á ykkar máta.
Þetta er Hrund sem talar í jólagírnum.

10 kommentarer:

Helga Hin sagde ...

Ég er hjartanlega sammála. Jólin eru til að slappa af og njóta samveru með sínum nánustu en ekki til að gera út af við sig af stressi. Sjáðu bara Páskana; ekkert minni hátíð en samt meira en helmingi minna stress á heimsvísu!

Gleðileg jól. Sé þig á morgun þegar ég sæki hrærivélina... eða kannski bara í kvöld.

Anonym sagde ...

Ég er svo innilega sammála þér, aðalatriðið er að geta notið jólanna og að hafa sína nánustu hjá sér, finna jólafriðinn í hjartanu, svo er bara bónus ef maður nær að gera eitthvað auka :-) jólaknús og kossar til ykkar og gleðileg jól, Þöll og fj.

Anonym sagde ...

frábær færsla Hrund... eins og alltaf!!!
Megi þú og þín fjölskylda eiga sem gleðilegust jól.
kær kveðja Dagný

Anonym sagde ...

Þetta er svo rétt hjá þér. Það koma jól hvort sem það er hreint hjá manni eða ekki. Ég var orðin svo leið á að bölva skápaþrifunum (sem ég hélt að væri skylda þegar ég byrjaði að búa!!) að ég ákvað að færa þau fram á vorið... eða þangað til ég nenni! hehe..

Ég óska þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla. Hafið það alveg rosalega gott yfir hátíðarnar.

Jólaknús...

Anonym sagde ...

Er frelsuð! Komst fyrir nokkrum árum í sama jólagírinn og þú!!!
Þvílíkt frelsi!!!!
Jólakveðja af Klakanum.
ég

Anonym sagde ...

Þú átt bara að gera eins og ég....
Fá tak í bakið og geta ekki hreyft sig ;-)
Liggja bara í rúminu sínu inni í stofu og fá aðstoð frá öllum öðrum sem hafa í raun og veru nóg að gera með sjálfan sig og sitt jólastress!!!!

Ég komst allavega að því hvað jólin fjalla um!!!
Þau fjalla um að jólin koma hvort sem rúmið er inni í stofu hjá þér og allt er í köku og klessu!!
Þau fjalla um að, alveg sama hversu mikið ég stressa mig á að liggja hér, þau koma samt!
Þau fjalla um að fólk sem elskar þig, skilur vel að þú getir ekki gert þitt besta eins og þú gjarnan vilt gera!
Þau fjalla um það að fólk sem elskar þig vill gera allt fyrir þig og gerir allt fyrir þig!!!

Annars kannast ég við þetta klifur upp og niður að þrífa, kaupa fullkomnar jólagjafir og svo framvegis, maður endar bara dauðþreyttur á aðfangadag og getur nánast ekkert notið þess!!!
Ætli börnunum sé ekki sama um smá drasl inni í þessum blessaða skáp sem hvort eð er er aldrei opnaður ;-)

Takk æðislega fyrir FRÁBÆRT jólakort!!!!!!!! Já, ég opna jólakortin fyrir aðfangadag, hi, hi!!
Ekkert jólakort héðan í ár vegna gubbupests, stress og baks ;-)

Gleðileg jól, snúllan mín, knúsaðu alla frá mér!!!

Anonym sagde ...

Já mikið rétt hjá þér hrund mín, þau koma þessi blessuð jól hvað sem á dynur. Megið þið fjölskyldan eiga gleðileg og stresslaus jól og nóta samverunnar við hvort annað yfir hátíðarnar. Sjáumst nú svo sennilega í jólamessu og jólaballi.

Jólaknús
Dísa og co

Anonym sagde ...

Kæra fjölskylda bestu óskir um gleðilega jólahátið.

Kær kveðja,
Humlehaven fjölskyldan

Anonym sagde ...

Gleðileg jól elsku vinir.
Jólakveðjur Lára og skvísurnar.

Anonym sagde ...

Hjartanlega sammála þér, pældu í því hvað við erum að gera börnunum okkar gott með því að láta hluti sem skipta máli ganga fyrir streituvaldandi þrifum og veseni. Frábært að skoða jólamyndirnar frá ykkur, mín myndavél er í viðgerð (= engar jólamyndir frá mér)en ég bað alla (í fjölsk.boðinu í gær) um að setja sem fyrst myndir á netið fyrir ykkur! Jólaknús og kveðjur til ykkar allra....
Hildur