18. december 2007

Litlir Íslendingar í litlum bæ

Í gær var íslenskubarnaleikfimi. Alveg hreint frábært framtak. Í klukkutíma fá íslensk Syðri Borgarbörn að sprella og reyna á hæfni sína og krafta í leikfimistækjum í leikfimisal í bænum. (anda núna). Amk einn pabbinn mætir snemma til að búa til spennandi "hindrunarbraut" og svo hjálpumst við foreldranir að sem á staðnum eru með að klára brautina og ganga svo frá. Á milli frátektar og tiltektar leika börnin sér svo og foreldranir ýmist eru með eða leyfa þeim að spreyta sig svolítið sjálf.

Dætur mínar elska þetta! þær fá alveg hreint heilmikið út úr þessu. Þær hreyfa sig mikið og koma heitar og sveittar heim. Þær finna hvar takmörk þeirra liggja og hvað það er kúl að geta farið í kollhnís í loftinu eins og Ásbjörn. Þær tala við og kynnast öðrum börnum sem eiga móðurmálið og menningararfinn sameiginlegan með þeim, þar með auka þau íslenska orðaforðann sem annars einskorðast svolítið við heimilið. Þær finna að þrátt fyrir að eiga ekki ömmu og afa til að taka með á ömmu og afadaga í skólanum, að þá tilheyra þær samt hóp í samfélaginu(anda aftur). Þær geta báðar verið með, þrátt fyrir tæp þriggja ára mismun á þeim.

Í gær var bryddað upp á þeirri nýjung að fara í Hókí Pókí í lokin. það var bara punkturinn yfir i-ið. Þær söngluðu hókí pókí fram að kvöldverðarborði. Það var komið með þá tillögu að fara alltaf í einhvern smá leik í lokin. Styð ég þá hugmynd heilshugar. Það er bara frábært ef börnin fá að kynnast þeim leikjum sem ég lék mér í sem barn. Eins og Hollin Skollin, Stopp, Í grænni Lautu, Inn og Út um Gluggann, Á Snældu skaltu stinga þig og allir þessir fjölmörgu leikir sem maður kunni.

Íslendingafélagið býður upp á þetta, félagsmönnum algjörlega að kostnaðarlausu.
Þó minna hafi verið um að vera í félaginu og þá kannski bara mest á heimasíðu félagsins undanfarið ár, er samt enn full gott í gangi og vil ég bara þakka fyrir það! Takk fyrir að það skuli vera einhver sem nennir að skipuleggja jólatréshöggvun( sem ég reyndar komst því miður ekki með í), takk fyrir 1. des kaffið, takk fyrir haustfagnaðinn og öskudaginn og páskabingóið, körfuboltann og og og...(ekki svo að skilja að ég hafi nýtt eða getað nýtt mér allt sem í boði hefur verið). Næst verður svo jólamessan með tilheyrandi alvöru íslensku jólaballi, svo Þorrablótið í lok janúar og svo framveigis.

Kæra Íslendingafélag og aðrir Íslendingar í Sønderborg, ég þakka fyrir mig á árinu sem er að líða og hlakka til að eyða því næsta með ykkur líka ;)

Þetta er Hrund sem talar frá hjartanu í köldu skólastofunni í fína bænum sínum á Suður Jótlandi.

6 kommentarer:

Helga Hin sagde ...

Hmm... takk fyrir sömuleiðis.
Tvær spurningar:
1. áttu ekki að vera að læra þarna inni í skólastofunni - ef þú hefur verið í pásu, afhverju varstu þá ekki inni hjá okkur, ha?
2. Er ekki tilvalið að bjóða sig fram í stjórnina? Jú, ok. þögn er sama og samþykki.

Anonym sagde ...

Já þessir leikfimistímar eru alveg snilld...Brnin sofna svo vel og snemma á mánudagskvöldum... Gangi þér að klára jólaundirbúninginn.
Kv,
Dísa

Anonym sagde ...

Mér finnst alveg ömurlegt að missa alltaf af leikfiminni en ég fæ samt alltaf að heyra skemmtilegar spennusögur eftir hvern mánudag :o)

En gangi þér vel í jólaundirbúningnum.
Og takk fyrir að bjarga okkur í dag með Ásbjörn.

Knús..

Anonym sagde ...

þetta er sko heilmikil vinna að blogga! já sko engin pása það! hehe! og Dísa ég vona að þú sért að meina gangi þér VEL en ekki illa... eða eitthvað annað;)
Ágústa, bara ekki málið, það munar sko ekkert um það, anytime( svona hérumbil allavega)

Anonym sagde ...

Já sammála, þessir tímar eru tær snilld. Við mundum sárt sakna þeirra ef þeir hættu.
Jólakveðja Hafdís

Anonym sagde ...

Æ, þetta væri ég sko til í að hafa hér í Köben!!!!

Hef alltaf langað með Viktor í einhverja svona barnaleikfimi en aldrei komið mér í það að reyna að finna út hvar það er hægt, væri fljót ef það væri íslendingaleikfimi!!!

Vona að þú hafir ekki eytt deginum á bókasafninu!!!
Ég eyddi mínum degi í að láta mér leiðast, reyna að labba, reyna að sitja smá og svo bara að sætta mig við að enginn fær jólagjafir í ár og að ég verði í verkjahelv.... næstu daga :-(

Knús!!