11. december 2007

Teflon

Ég er að vinna í því þessa dagana að láta vaxa á mig teflon húð! það er ekki lítið sem ég get æst mig yfir smáhlutum. látið þá eyðileggja fyrir mér heilu dagana alveg hreint. Blóðþrýstingurinn rauk all verulega upp í dag þegar ég komst að því að búið væri að gereyðileggja hjólið hennar Ísabellu þar sem það hefur staðið fyrir utan skóladagheimilið í fáeina daga.
Við þurfum að fara að kaupa gott hjól handa Alexöndru því hennar var rústað á sama hátt í vor þegar hún var niðrá strönd.Hún er nýfarin að meiga hjóla og í samráði við iðjuþjálfann(er fysioterapeut annars ekki iðjuþjálfi???) er hjólreiðar góð leið til að styrkja hana eftir "letilíf" síðastliðna hálfa árið.
Nú þurfum við að kaupa tvö hjól! ætli við gætum ekki fengið magnafslátt?? Nú en það er kannski ekki aðal orsök blóðþrýstingsins, heldur það að eigur fólks skulu ekki látnar í friði. Að ég skuli ekki geta sent börnin mín í skólann á nýju hjólunum sínum því þau verða bara skemmd! þarf að fara að nota skattapeninginn í vaktaðar hjólageymslur við skóla bæjarins?þarf þá ekki bara að loka niður skóladagheimilum og gefa börnunum lykla um hálsinn, til að hafa efni á að vakta hjólageymslurnar.
Nei auðvitað gengur það ekkert, við foreldrar verðum bara að bæta þessum lið inní budgettið sem eðlilegum kostnaðarlið við skólagöngu barna okkar. Nú eða bætt á mengunina, aukið traffíkina og keyrt börnin í skólann. úff hvað teflonhúð hefði verið góð í dag.

Teflon húð já, kemur að notum við fleiri tilefni. Að taka inná mig er einkennisorð mín. Mér tókst þó ágætlega að mynda teflon gegn bekkjarfélaga í voða súru skKapi. Teflonið virkar ekki á heimavelli.Ef einhver er í vondu skapi á bænum, smitast ég auðveldlega.

Um daginn tók ég hluti inná mig sem komu mér svo á óvart og það hafði slæm áhrif á mig lengi á eftir og er í raun ekki orðið alveg gott. þá var nú gott að eiga Steina að og aðra.Eftir það fór ég að reyna að smyrja mig með þessu frábæra non sticky efni,en ég á langt í land...

Annars er Stekkjarstaur stinnur eins og staur á leið til byggða og þegar hann er búin að gefa börnunum á Íslandi í skóginn mun hann nota töfrasleðann sinn með töfrasjónaukann í vasanum og gjafir í strigapoka á bakinu, og setja í skóginn hjá íslensku börnunum í vor fögru borg í Danaveldi.



Fróðleikur af vísindavefnum:
Íslensku jólasveinarnir eiga sér rætur í íslenskum þjóðsögum og eru því af allt öðrum uppruna en Santa Claus. Þeirra var fyrst getið í Grýlukvæði frá 17. öld sem eignað er séra Stefáni Ólafssyni í Vallanesi. Þar eru þeir sagðir börn Grýlu og Leppalúða:
Börnin eiga þau bæði saman
brjósthörð og þrá.
Af þeim eru jólasveinar
börn þekkja þá.
Af þeim eru jólasveinar
jötnar á hæð.
Öll er þessi illskuþjóðin
ungbörnum skæð.

Kjósum Teflon!

12 kommentarer:

Anonym sagde ...

hæ sæta

gangi þér vel með teflonið

fysioteraput er sjúkraþjálfari


knus frá grasekkjunni sem er aleiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin heima

Anonym sagde ...

Ekki gott hvernig farid er med hjól hér í bæp og sennilega vídar. 3 hjól farin fyrir ekkert hjá okkur. Ekki gott mál. En vardandi áhyggjur og pirring, tá er mikilvægt finnst mér, add muna ad madur velur sér vidhorf.
Gangi tér vel :)

Anonym sagde ...

Takk fyrir skutlið grasekkja!
Guðrún, þetta er svo rétt hjá þér með viðhorfið, það er einmitt eitt af "ingredienserne" í teflon...

Anonym sagde ...

Kvitt
andlaus
get ekki skrifað
Knús

Eva gullfiskaeinkaritari í Kolding

Anonym sagde ...

Hej!!
Vantar einmitt svona teflon húð!!!
Getur maður ekki keypt hana??? Er nefnilega borgarbarn og kann ekki að láta neitt vaxa..... eða þannig!!!
Kveðja úr snjónum á Klakanum;
ég

Anonym sagde ...

Kvitt af skaganum

Anonym sagde ...

Linda ég er að vinna í teflon uppskriftinni, ég sendi þér hana þegar hún er tilbúin ;)
Kveðja til Skagans :)
Kæri gullfiskur, ekki gleyma því að við hittumst á morgun, aldeilis ekki andlausar heldur fullar af lífi...:-)

Anonym sagde ...

Já, þetta er ótrúlegt með hjólamál hér í dk. Hvað er eiginlega málið?
Sammála Guðrúnu með viðhorfið, vel mælt og orð að sönnu.
Góða helgi.
Hafdís

Anonym sagde ...

Hæ gaman að sjá þetta um jólasveinana en þeir sétja í skóinn ekki skóginn :-) Jólaknús Þöll

Anonym sagde ...

setja hehe

Anonym sagde ...

ha ha ætlaði einmitt að fara að leiðrétta þig líka Þöll! haha!

Anonym sagde ...

OOoooohhhh........ var að vona að það væri komin ný færsla!!!

Kv.
ég