Afmælisbarn dagsins
Frumburður minn
Alexandra Nadía
14 ára
Frumburður minn
Alexandra Nadía
14 ára

Elsku hjartans gullið mitt sem fæddist 17 mínútur yfir 5 að nóttu til á köldum vetrardegi. Fæddist með mikið hár og svo falleg sem frekast getur verið. það var svo yndislegt að fá hana í hendurnar. Mér fannst heimurinn hafa stöðvast. það skipti ekkert máli nema hún. Vinkonurnar komu í heimsókn, segjandi mér frá lífinu fyrir utan veggi sjúkrahússins, en þær töluðu út í loftið, hvernig var hægt að rúma eitthvað annað en þennan gullmola sem lá svo vært á brjósti mínu, svo örugg og sæl að vera komin í þennan heim? Ég man þegar hún lá 4ra daga gömul í ljósum til að losna við guluna og þá kom það , þá kom sprengingin, ég bara grét og grét, bara af hreinni væntumþykju til þessa varnarlausa stúlkubarns sem lá þarna í hitanum. Mig langaði svo að taka hana út og knúsa hana og aldrei sleppa. Úff en hvert ár síðan þá hef ég þurft að sleppa pínulítið og nú eru ekki mörg ár í að hún verði orðin flugfær.
Hverfisblaðið hér í bæ ætlar að gefa henni rjómatertu í tilefni dagsins. Sætt af þeim finnst mér.
Hún elskar athygli á afmælisdaginn og myndi ekki finnast leiðinlegt að fá afmæliskveðju-sms ;) ;)
5 kommentarer:
Til hamingju með daginn. Tíminn líður, tíminn líður.
Vona að þið eigið ánægjulegan afmælisdag saman.
Afmæliskveðja Hafdís
Til hamingju með gullmolann :o) Flottar myndirnar af henni.
Bestu kveðjur..
Til hamingju með flotta frumburðinn þinn í gær. Og gleðilegt ár kæra fjölskylda.
Kv,
Dísa
Gleðilegt ár og hjartanlega til hamingju með Alexöndru. tíminn líður hratt þegar maður lítur og börnin sín og hugsar til baka. Þetta er bara frábært ferli.
Gangi ykkur vel.
Kær kveðja,
Guðrún Þorleifs
elsku Alexandra! Til hamingju með afmælið þitt! Ég man líka eftir þér á leikskólanum, frábært og skrítið að það er liðinn svona langur tími. Vona að þú hafir haft það rosa gott á afmælisdaginn, þú ert frábær stelpa,knús og kossar Þöll og fj.
Send en kommentar