9. januar 2008

segjum það nú bara

já já hvað á ég svo að segja ykkur í dag! þetta var ekki spurning, tja eða hálft í hvoru því þetta er vissulega sett fram sem spurning þar sem hvað kemur fyrir í setningunni. Endar hún þó ekki á spurningarmerki eins og lög segja til um þegar um spurningu er að ræða. Ég tek mér það bessaleyfi að skrifa mína hálft í hvoru spurningu á þennan hátt þar sem um er að ræða spurningu sem ekki er ætlast til að sé svarað. En veltum nú fyrir okkur orðinu bessaleyfi, hvað er það? skildi það finnast í Orðabókinni eða mun orðið vera flokkað undir slangur. hvað þýðir þá slangur er það tökuorð eða hvað. Nú jæja ég er að hugsa um að hætta að bulla svona í ykkur.
Ég hef það bara gott, er í góðu skapi og allt í gúddí. Helga situr hér mér við hlið og skorar á sína landafræðiþekkingu á netinu og bekkjarfélagarnir fylgjast áhugasamir með hér allt í kring. Við erum í "leshóp" hér nokkur úr bekknum, það er að segja að læra saman. Við semsagt förum uppá töflu til skiptis og kennum hinum efnið. Mjög áhrifarík aðferð verð ég að segja. Þetta er allt sem ég hef að segja í bili.
þar til næst.

8 kommentarer:

Anonym sagde ...

Til hamingju með dótturina í gær :)

Knús
Eva Björk

Anonym sagde ...

Hmmmmmmm áhugavert....... hinir eru að læra en þú að skrifa blogg!!! Áhugavert!!!
Til hamingju með frumburðinn!!!
Og já....... GLEÐILEGT ÁRIÐ!!!!
Sjáumst hressar í netheimum.

Kv.
ég

Anonym sagde ...

vid høfum lika einstakasinnum notad thessa adferd... finnst hun god!
til hamingju med thetta fallega stulkubarn...:)
kvedja
xgranni Dagny

Anonym sagde ...

Langaði bara að óska þér góðs gengins í prófinu á morgun!
Knús
Eva Björk

Anonym sagde ...

Frábært að fá heiðurinn að vera fyrst til að óska þér til hamingju :)
Njóttu dagsins í skýjunum, þú átt það skilið.
Heyri betur í þér þegar þú kemur niður aftur he he he.
Kveðja Hafdís

Helga Hin sagde ...

Til hamingju vinkona! Auðvitað gastu þetta, vorum við ekki búnar að segja þér það?

Anonym sagde ...

Til hamingju með árangurinn, frétti þetta hjá Emilie í gær þegar hún var á msn.
Kv. Hildur

Anonym sagde ...

Elsku Hrund og Alexandra, Ísabella, Emilíana og Steini.
Fyrst kærar thakkir fyrir jólakortid, sem var alveg frábært.
Til hamingju med afmælid Alexandra, gaman ad sjá myndirnar af thér, rosalega ertu ordin stór og flott stelpa.
Gaman ad sjá allar myndirnar í albúminu ykkar, stelpurnar eru ordnar svo stórar. Vona ad vid náum ad hittast í ár, thad lýdur allt of langur tími. Thid erud alltaf velkomin í heimsókn hingad. Thad eru stórar fréttir á okkar bæ I) já ég er ad verda stærri. Allt gengur fínt. Er á bloggi: http://solveig-kristin.blog.is/blog/solveig-kristin/
og loksins búin ad búa til bloggsídu fyrir Freyju, med fornafninu mínu sem leyniordi.
kær kvedja, Solla