Við Emilíana vorum heima í fyrradag. Reyndar búnar að vera heima í marga marga daga, því skottan fékk Skarlattsótt. Það var þó vel valin tímapunktur hjá þessari elsku því ég var í vetrarfríi í síðustu viku og það var ekki búið að plana neitt nema að slappa af og það gerðum við líka heldur betur.
Við mæðgur ákváðum að rölta út í Brugsen, sem er nú kannski ekki í frásögur færandi. En sagan fjallar eiginlega um hana Klöru, litlu svörtu kisuna okkar, sem elti okkur út í búð.
Við þurftum að fara yfir umferðargötu svo ég reyndi að fæla hana í burtu áður en við fórum yfir, en hún hlustaði sko ekki og elti okkur yfir. Nú en þegar við vorum komin yfir stóru götuna og vorum rétt við búðina, kom svartur Krummi auga á litlu svörtu Klöru. Krummi vissi greinilega ekki að kettir elta fugla og ákvað að ógna Klöru svolítið. Með hávaða skrækjum og lágflugi yfir kisulóru, fékk Krummi hár hennar til að rísa. Kisa hélt áfram að elta okkur en dauðhrædd við Krumma sem flaug milli trjáa og nær flaug á okkur mæðgur. Nokkrir mávar virtust taka undir söng Krumma og görguðu þær líka og svifu um. Kisa byrjaði að mjálma og ætlaði að elta okkur inní búð. Emilíana var orðin hrædd við öll þessi fuglalæti. Ég reyndi að reka Klöru í burtu á meðan við færum inn í búð, en hún ætlaði að elta okkur inn um galopna hurðina. Það gekk ekki svo ég tók Klöru í fangið, við löbbuðum með hana heim, Krummi þorði nú ekki lágfluginu en gargaði uppí tré, við lokuðum kisu inni heima og gerðum nú aðra tilraun til að fara út í búð, það tókst!
Sagan endurtók sig í gær þegar við Steini röltum út í búð. Í þetta sinn var kisa búin að átta sig á hlutverkunum og bara klifraði uppí tré til að ná Krumma. Svartur hundur rölti framhjá og stoppaði við tréð og fylgdist með Klöru og Krumma uppí tré.
Svona er lífið hjá familíunni á Reiðvangi.

Síðan þá hefur svosem lítið fréttnæmt gerst. Allt gengur sinn vanagang. Stór og góður hópur fólks hefur boðað komu sína í apríl og hlakka ég virkilega til að fá þau.
Segi ekki meira í bili því ég hef margar síður að heimsækja núna eftir algjört netsvelt.
Knús til þeirra sem vilja ;)
11 kommentarer:
takk fyrir bloggið
knus
takk fyrir kommentið ;)
Til hamingju með endurheimt samband við umheiminn!
gaman að heyra frá þér, knús Þöll
Æ hvað hún er mikið krútt þessi kisulingur sem þú átt. Ég er net og símalaus þessa dagana ég læt þig vita þegar ég fæ síma aftur elskan knús YOKAN
WELCOME BACK (vinsamlegast lesist eins og þetta er skrifað með Arnold Schwarzenegger röddu!!!)
Knús móttekið!!!
Kv. ég
Ég vil fá knús, takk!!!
Er búin að vera mikið að spá í af hverju aldrei kemur nein færsla frá þér en nú fékk ég loks skýringu!!
Vona að ég sé ein af þeim sem þú ætlar að heimsækja í netheiminum...
Og láttu mig endilega vita af tauþvotti og þess slags, hef reyndar líka kjaftað við þig í miðjum bakstri svo ég er til í allt!
Langar bara að kjafta við þig ;-)
Knús
Elísabet
LOKSINS KOM BLOGG ;)
Knús á þig vinkona!
Eva peva í kolding
Skemmtileg lítil saga, það eru einmitt þessir litlu hlutir sem gera lífið svo áhugavert!
Knús til ykkar (svona áður en við hérna á norðurhveli jarðar hverfum alveg undir fönn, það bara HÆTTIR EKKI að snjóa...) Hildur
Skemmtileg saga!
Kvitt frá íslandi.
Dísa
Takk fyrir síðast og þar síðast
Alltaf gaman að hitta ykkur þið eruð svo æðisleg
Ætla að bæta þér inn í tenglana hjá mér
Send en kommentar