7. februar 2008

Sofðu unga ástin mín

Sælir verið þið lesendur góðir!
Nýju gleraugun komin á nefið og heimurinn orðinn fallegri, tja eða að minnsta kosti skýrari fyrir vikið. Er nú samt enn að venjast þeim. Þau eru það flott og passa mér það vel að það er barasta ekki nema um 4 persónur búnar að hafa orð á þeim :( Aðeins fleiri tóku þó eftir að ég litaði hárið á mér gult, svo ósýnileg er ég allavega ekki!

Anyways. Litla örverpið mitt, tæp 4ra ára hnáta með ljósskollitað hár og blá augu og alltaf í sólskinsskapi, kom örþreytt heim í gær. Hún lagðist á gólfið á ganginum og harðneitaði að leyfa okkur að taka sig upp. Eftir að hafa legið þar dágóðan tíma, og útlit var fyrir að hún myndi sofna, tókum við foreldrarnir hana upp og löggðumst með henni uppí rúm. Þá kom upp þrjóska í stúlkuna sem aldrei fyrr (því hún er hvorki þrjósk né þver frekar en ég veit ekki hvað) og hún bara sló til okkar og var reið yfir þessari stjórnsemi okkar. Eftir dágóða stund ákváðum við að leggja hana þar sem við tókum hana upp og þá róaðist anginn. Já og STEINSOFNAÐI! eins og sjá má á myndunum. Svaf hún þar hin værasta á hörðum flísunum...


18 kommentarer:

Anonym sagde ...

Æ litla dúllan. Sú hefur verið þreytt :o)

Samt virðist nú ekkert fara illa um hana þarna!!! haha..

Knús í kotið..

Helga Hin sagde ...

Æ, ég man enn hvað það var gott að skríða undir eldhúsborð og leggja sig þar á beru gólfinu þegar ég var ca 5 - 6 ára. Skil hana vel!

Anonym sagde ...

Ha, ha, ha!! Róaðist við að vera lögð aftur á sama stað og áður en ekki í rúminu, ha, ha, ha!!!
Takk fyrir hláturskast dagsins ;-)

Hlakka til að sjá þig með nýju gleraugun og vonandi bara sem fyrst!!
Knús frá Köben!

Anonym sagde ...

Þetta er ég Elísabet sem skrifaði áðan!!

Anonym sagde ...

æi elsku fallegtið mitt.

-Ragnhildur

Anonym sagde ...

Alltaf jafn mikil dúllan.

Góða helgi og ef þú ferð á grensusvellið í dag þá góða skemmtun.

Anonym sagde ...

hehe blessuð börnin, góða helgi, knús frá Þöll

Anonym sagde ...

ó krúttið :))))

Ég er númer fimm sem tók eftir gleraugunum þínum!

Og mér finnst þú glæsileg með þau :)

Kveðja
Nr. fimm sem tók eftir gleraugunum þínum ;)

Anonym sagde ...

Hæ mín kæra, hún er yndisleg.
Ég er að leggja lokahönd á 4ra ára afmælisgjöfina hennar, var að vinna í henni í gærkvöldi.

Gaman að lesa bloggið þitt þegar ég loksins gef mér tíma. Las núna allan janúar og svo febrúrar.

Mér finnst ég miklu nær þér þegar ég les þetta.

Allt gott að frétta héðan, mikill og harður vetur í gangi hér á Íslandi en mér líkar það vel, hef alltaf verið vetrarmanneskja.
Fór í gær með börnunum út í bratta snjóbrekku, eins og mér fannst svo gaman í gamladaga, og þau komu öll löskuð heim eftir ævintýrið. Auðvitað stalst ég til að prófa einn stígasleðann þótt hann þoli ekki svona mikið en ég slapp með skrekkinn, hann brotnaði ekki. :-)

Jæja bið að heilsa í bili.
Knús til allra í familíunni.
Kv. Valdís.

Anonym sagde ...

Kvitterý kvitt........
........ á rúnterý rúnt!!!

Gott að geta sofið......... hvar sem er!!!!!

kv. úr snjónum endalausa!!!

ég

Anonym sagde ...

Æi..þvílík dúlla þetta skott.

Ekki slæmt að vera svona afslappaður að geta bara sofnað hvar sem er þegar maður er þreittur.
Kv,
Dísa

Anonym sagde ...

Æi, dúllan..........Ég man þegar hún sofnaði á gólfinu hjá mér.....Var að leika sér og allt í einu heyrði ég ekkert í henni, leit inn í stofu og dauðbrá við að sjá dúlluna liggjandi á gólfinu en þá var mín bara að fá sér eftirmiðdagslúr!!!
Hvernig væri að setja inn mynd af þér með hin margumtöluðu nýju gleraugu, ha ?? (Og hárið í stíl... gult, skv. þér, ekki satt??
Kv. Hildur

Anonym sagde ...

Algert krútt þarna hjá þér :)

Anonym sagde ...

Hahahah snúðurinn, frábærar myndir.
Kveðja Hafdís

Anonym sagde ...

ég bíð spennt eftir nýju bloggi!!!!
knús
Eva Bjork

Anonym sagde ...

Enn ekki komið nýtt blogg ;)

EB

Anonym sagde ...

hmmmmmmmmmmmm

Anonym sagde ...

Er komin í "bíðeftirbloggi" klúbbinn!!!!!!!!!
Kv.
ég