Það er hreint ótrúlegt að það skyldi koma helgi svona fljótt...
Heilir tveir skóladagar búnir og nú tekur við tveggja daga helgi....
Ég hef það hreinlega of gott...
Um daginn fengu báðar litlurnar að fá vinkonu með sér heim. Þetta var í fyrsta sinn fyrir Emilíönu. Þegar hún mætti í leikskólann um morguninn beið Camilla eftirvæntingarfull eftir henni og þær fóru strax að leika, spenntar yfir að vera að fara heim saman. Þegar ég sótti voru þær enn að leika saman :)
Ísabella bauð Selmu með heim og léku allar fjórar stelpurnar sér afbragðs vel saman. Held að Emilíana hafi sjaldan fengið að vera jafn virkur þáttakandi í leik eins og þá ;)
Í dag fór Emilíana í fyrsta sinn heim með stelpu úr leikskólanum. Hún og Emmely ná ágætlega saman og er ég spennt að heyra hvernig var hjá þeim, því það er nú líka svolítið erfitt að senda örverpið sitt svona litla og mállausa heim til ókunnugra...
Ísabella fór líka heim með bekkjarsystur í dag og veit ég að hún og Óla Sól skemmta sér konunglega saman, en þær ná betur saman þegar Emilíana er hvergi nálægt að stela athygli vinkonunnar, sem hefur mjög gaman af að leika við og vera góð við þá stuttu.
Ég var að spá í hvort maður gæti farið á námskeið í tímaskipulagningu??? eða ráðið til sín tímacoach (tímaþjálfa), kannski farið í sjálfshjálpargrúppu eða keypt bók um tímaskipulagningu.Hérmeð auglýsi ég eftir upplýsingum um slíkt, tek líka á móti reynslusögum, góðum ráðum og meiri tíma....
Þarf ég nokkuð að nefna það að mér þyki ógurlega gaman að lesa kommentin ykkar ;)
28. marts 2008
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
10 kommentarer:
Úff veit bara að númer eitt er að hafa dagbók, knús og góða helgi, Þöll
Ósammála Þöll. Það er sko ekki nóg að hafa dagbók því maður þarf líka að kíkja í hana. Ég held að tímaþjálfi væri málið, einhver maður (gæti t.d. verið Matt Damon) eða kona sem fylgdi manni eins og skugginn og klappaði saman lófum ef maður þyrfti að haska sér en spjallaði við mann ef nægur væri tíminn. Já! ég held að það væri málið! Ég pant Matt Damon. Verst að ég eiginlega þarf ekki svona tímaþjálfa... þarf frekar áminnara.
Helga ég held barasta að þú sért jafn sæt og gáfuð og fyndin og Matt Damon og með gott tímaskyn, ég er að hugsa um að ráða þig í djobbið ;)
Ég vel Matt Damon! :)
knús stelpur
Ég veit alla vegna ef þú ætlar að skipuleggja tíman þinn vel EKKI fara að vera virk á Facebook það er ekki gott !
Það er frekar svona tímastelari !
Takk fyrir daginn og vona að Steini venjist borðinu fljótt !
Mér fannst þau bæði flott :)
Flott breyting á síðunni þinni :)
Veit ekkert með tímaskipulagningu annað en það þó svo maður skipuleggji þá koma utan að komandi "púkar" og velta öllum plönum svo maður verður að byrja upp á nýtt ;)
Kveðja,
Guðrún
jæja.......................................................................................................................................................góða helgi................................................knus....................................................þessi sem er búin að blogga
Til hamningju með skvísuna þína og mína auðvitað.
knúsaðu hana frá mér mín kæra
Kveðja Yokan
Jæja ekkert afmælisblogg :)
Takk fyrir okkur í gær ! Frábær veisla það lág samt aldrei neinn vafi að þetta yrði það
Kv Peta og co
Hej..... Adam Brown...... er hann ekki bara að bjóðast til að verða tímaþjálfinn þinn????????
Set allt í símann og hann lætur mig vita þegar ég á að gera eitthvað...... veit að hann er ekki eins sætur og Matt Damon en virkar mjög vel!!!! Og er ég nánast alveg að hætta að gleyma öllum sköpuðum hlutum!!!!
Hils pils úr snjónum góða á Klakanum!!!!
Send en kommentar