Annars er ég nokkuð sátt við staðsetningu þeirra í augnablikinu.
Í gær stakk Steini uppá því að við myndum baka saman, það kæmi örugglega einhver í heimsókn. Úr urðu tvær dýrindis gamaldags kaffikökur og gestir og meira að segja fékk ég blómvönd og ekki á ég nú afmæli strax.
Talandi um afmæli.Það styttist í að litla krúsla verði 4ra. Mér finnst það svo skrítið, hún er allt í einu orðin svo stór, þýtur uppúr fötunum sínum og hafði kennarinn hennar Ísabellu orð á því í morgun hvað henni fannst hún hafa stækkað síðan hún byrjaði að fylgja stóru systur í skólann í haust. Hún óskar sér ekkert í afmælisgjöf sem gefur frá sér mikinn hávaða og ekkert sem tekur allt of mikið pláss;)
Hún óskar sér örugglega eitthvað fyrir dúkku, t.d. dúkkupela eða þá smádót eins og litlar fígúrur.Hún hefur líka gaman af töskum, enda er hún ekki barnabarn ömmu sinnar fyrir ekki neitt;)


8 kommentarer:
Gvuð hvað ég hló hátt "barnabarn ömmu sinnar"
Það er bara vesen hvað hún amma hennar er töskusjúk.
Ánægjulegt að það er ekki bara ég sem tek eftir því
-Ragnhildur
Bara svona til að leiðrétta allt þá var blómvöndurinn til Steina ekki þín þú áttir bara að setja hanna í vatn :)
Svo er bara verið að skjóta á mann ekkert með hávaða eða fyrirferða mikið
hmmmm
hvað á ég þá að kaupa !!! Allir hinir gefa henni pela og töskur ...
fílahjörð....spegill sem talar.... eða læti í poka ...
Bara svona til að leiðrétta allt þá var blómvöndurinn til Steina ekki þín þú áttir bara að setja hanna í vatn :)
Svo er bara verið að skjóta á mann ekkert með hávaða eða fyrirferða mikið
hmmmm
hvað á ég þá að kaupa !!! Allir hinir gefa henni pela og töskur ...
fílahjörð....spegill sem talar.... eða læti í poka ...
Flott lúkkið á síðunni. Það er spurning hvort maður ætti að fara að breyta um líka. Æi, neeee... best að vera bara íhaldssamur eins og Dani hehehehe :-)
Mojn.
Þetta eru ekta þínir litir svo að lúkkið hlýtur að vera fínt ;)
knus í mús
breytingar/tvíburi.. ergo... Svalan mín... hún er alltaf að færa til húsgögn... og breyta einhverju!!!
en síðan þín er flott.
kv. dagny
Ertu tvíburi?? Ég á einn tvíbura en hann er ekki enn farinn að færa til húsgögn.. kannski/vonandi að það fylgi ekki tvíbura-strákum :o)haha..
En flott nýja lúkkið :o)
Elsku Hrund mín!
Síðan er flott,
Kveðja frá þeirri töskusjúku
Send en kommentar