12. april 2008

Af hverju get ég ekki flogið þó ég sé með vængi?

Staðreyndir:
Verðrið í Danmörku:
Heitasti aprílmánuður 28,6 gráður. ('93)
Kaldasti aprílmánuður -19 gráður. ('22)
Meðalhiti á Suður Jótlandi í apríl er 9,9 gráður
Í dag eru 10 gráður.

Heitasta árið var í fyrra.
Svona lítur veðurspáin út hér í bæ.

Meðalhiti í Reykjavík í apríl er 2,9 gráður
Svona lítur veðurspáin út í Reykjavík.

Frásögn:

Emilíana fékk vængi í afmælisgjöf, hún bað um að fá þá á í dag og fór svo út til að fljúga. Stuttu síðar kallar hún á mig og vonsvikin segir hún að hún geti ekki flogið. Reyni ég þá að útskýra fyrir henni að hún geti bara þóst fljúga og sting uppá að hún leiki það á trampólíninu. Hún fer á trampólínið og aftur er kallað MAAAMMMMA og ég kem. Svekkt segir hún að hún geti enn ekki flogið. Komnar inn og biður hún þá um að fá band. Ég spyr hvað hún ætli að gera við það. "fjúga" segir sú stutta. Spyr ég hvernig hún ætli að fara að því. Jú þá ætlar hún að líma það utan á sig og svo bara fljúga! einfalt mál og mikil uppgötvun, augun stór og munnurinn galopin yfir þessu snjallræði. Spyr ég þá hver getur gert svoleiðis og segist hún þá hafa séð það í sjónvarpinu.

Já í dag varð Emilíana einum deginum eldri og því einum deginum nær sannleikanum. Nú veit hún að möguleikarnir í þessu lífi eru aðeins færri en hún hélt í gær.

Ég held það nú.

10 kommentarer:

Anonym sagde ...

ÆÆÆÆÆÆÆ!!
Elsku litla ljósið.
Kveðja frá ömmu Gerði.

Anonym sagde ...

Þau eru svo einlæg og yndisleg þessar elskur. Algerlega óborganlegt og ómetanlegt gullkorn.

Kveðja,
Dísa

Anonym sagde ...

Hún er algjör snillingur, þessi elska !

Það er svo gaman að því þegar maður uppgötvar heiminn !

Maður verður vitari og nær sanleikanum á hverjum degi

kv

Peta

Anonym sagde ...

Æii, þetta er bara það krúttlegasta sem ég hef lesið.

Helga Hin sagde ...

Þú ert nú svo mikill snillingur að segja frá Hrund! Þetta var mjög sæt saga og ég er viss um að Emilíönu á eftir að þykja gaman að lesa þetta þegar hún verður "orðin fullorðin og bílarnir farnir að fljúga" eins og Marek sagði.

Anonym sagde ...

snilld!!!
kv. dagny

Anonym sagde ...

Til hamingju með litluna. Og frábært gullkorn, haha... Þau deyja ekki ráðalaus þessi blessuðu börn :o)

Bestu kveðjur..

Anonym sagde ...

Innilega til hamingju með afmælið hennar Emilíönu! knús og kossar frá okkur, Þöll og fj.

Anonym sagde ...

Ju hvað þetta er alveg dásamlega yndislegt!!!
Börn eru best!!!

Kv. from þe kleik þar sem ekki hefur snjóað í næstum því 3 daga!!!!

ég

Anonym sagde ...

Já, það er oft erfitt að komast að sannleikanum að heimurinn sé ekki jafn auðveldur eins og maður heldur!
Af hverju ætti maður ekki að geta flogið þegar maður er búin að fá vængi í afmælisgjöf???

Hlakka til að sjá þig bráðum í höfuðborginni!!!!
Knús
Elísabet