1. maj 2008

Bæjarferð

Ég labba út úr vélinni og finnst ég allt í einu frjáls eins og fuglinn! Ég elska að eiga fjölskyldu og ég er heimakær, en mikið er það líka dásamleg tilfinning að finna að maður er maður sjálfur, bara ein persóna. Tek strætó niðrá mína kæru Amagerbrogade. Sakna svosem ekkert að geta ekki ráfað um þar. Sakna Kaupmannahafnar ekkert rosalega, bara Bíóhúsanna og kaffihúsaferðanna aðallega og vinanna. Líður vel í Sønderborg. En mikið rosalega hlakka ég til að hitta vinkonurnar og skemmta mér með þeim.
Ég tek strætó niðrí bæ. Hringi í frænku mína. Mamma og hún eru systkynabörn. Hún heitir Þóra og er barasta næstum því jafn gömul mér. Hún er heima og viti menn, flutt í 7 mínútna gang frá miðbænum!! Frábært. Ég rölti af stað. Jahá, passar, tók akkúrat 7 mínútur að labba þangað. Svo þurfti bara að bæta öðrum 7 mínútum við tröppulabbið.... jedúddamía! Gott að ég var ekki að hjálpa við þá flutninga!
Ég á þar 3 yndisleg frændsystkyn. Litla frænka sat hjá mér nær allan tímann.

Strætó út á Amager, skellt sér í aðeins betri fötin og makeup á. Elduðum saman, 9 konur á aldrinum tuttugogeitthvað uppí tuttugogníuD. Vá þvílíkt kjaftað! Þvílíkt hlegið, sumar með harðsperrur á eftir!!! Í maganum!... út af hlátri sko....
Sofið út, já ÚT! Vakin við símann klukkan hálfeitt. Betri helmingurinn að tékka á status. Mín rauk út því búin að lofa mér í smá heimsókn fyrir flug. Varð allt of stutt sú heimsókn og svo keyrði Elísabet mig út á völl ( takk fyrir súper þjónustu Elísabet). Beint í barnaafmæli, íslenskar pylsur os SS sinnep, ÍSLENSKT JÁ TAKK!

Ég á orðið góðar vinkonur í hverri höfn... ætla ekki að flytja á fleiri staði(nema HEIM auðvitað), er ótrúlega rík að eiga góða að út um allt hreinlega.

Gott að koma heim aftur og finna að manns var nú svolítið saknað á þessum eina og hálfa sólahring.

3 kommentarer:

Anonym sagde ...

Þú ert gersemi, svo það er ekki skrítið að þú eigir góðar vinkonur í hverri höfn. Haltu áfram að vera sú sem ú ert!
Kært knús úr nágreninu :)
Guðrún Þorl.

Anonym sagde ...

Hjartanlega sammála Guðrúnu.
Tengda!

Anonym sagde ...

OOoooohhhhh fékkstu húsmæðraorlofshelgarferðarleyfi!!!
Frábært!!!!
Kannast við þetta að vera bara ég sjálf........ skrítin tilfinning en góð...... man þegar ég fór að læra í Köben og var ekki lengur eiginkonan eða mamman........ var bara ÉG og átti mig sjálf.... en líka alveg dásamlegt að koma heim og vera eiginkonan og mamman!!!!

Haltu áfram að njóta lífisins.... það er svo gaman.

Kv.
ég