Uppáhaldsfrumburðurinn minn var keyrð niður í dag! Og helv. ökuníðingurinn stakk af! hún var að hjóla yfir götu niðrí miðbæ þegar bifreið ekur á framhjól hennar með þeim afleiðingum að hún kastast af hjólinu og hún veit ekki einu sinni hvernig en endar hinum megin við bílinn, þ.e. þeim megin götunnar sem hún var lá leiðinni á. Bílstjórinn keyrir bara í burtu!!! Dóttur minni sem fannst þetta eitthvað pínlegt, rauk upp og flýtti sér sinnar leiðar áður en einhver færi að snúa sér að henni. Nú getur hún varla stigið í fótinn svo illt er henni í hnénu. Og ég verð svooooooo REIÐ! Bílstjórinn heppinn að ég skildi ekki hafa verið nálægt, ég hefði lúbarið hann, eða rústað bílnum hans, já eða bara sagt honum að hann eða hún væri asni,ökuníðingur og fáviti að keyra í burtu, algjörlega vanhæfur samfélagsþegn sem veldur tjóni á unglinum og lætur sig engu varða um það. Og hana nú..... þá er búið að losa um þetta. púff.
Frábær helgi í alla staði. Á föstudaginn skelltum við Steini okkur á Indiana Jones. Ákaflega notaleg tilbreyting að gera eitthvað saman og myndin var hin fínasta afþreyjing og sætin í bíó ótrúlega góð,hægt að leggja þau aftur. Laugardagur og tvöfalt barnaafmæli útí skógi, veðrið sem best verður á kosið. Sunnudagur og barnaafmæli, pylsur og marengstertur og fínt fólk eins og fyrri daginn, sólskin og gott.
Margt skemmtilegt framundan svo engin tími til að vera með í maganum yfir prófverkefnum sem eru í fullum gangi núna. Tónleikar framundan, sumar show með einkafrumburðinn sem módel, vinnuföstudagur í leikskólanum og sumarhátið í 6 ára bekknum með grilli og fjöri. Kjallarinn í þurrkun og garðurinn verður þarna ennþá þegar fer að róast hjá mér.
Með kærri kveðju
Hrund ;)
26. maj 2008
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
8 kommentarer:
Einkafrumburður og uppáhaldsfrumburður?? Hversu margir frumburðir eru þetta?? Hversu mörg egg getur maður borðað á fastandi maga??
Hryllingur þegar svona kemur fyrir. Hvað er fólk að pæla sem stingur af frá því sem það gerir??? Léstu líta á hnéið hennar á slysó? Vona að viðkomandi engist af "hvernig ætli hún hafi það" verkjum!!!
Gaman þegar nóg er af skemmtiegu framundan og gangi þér vel í skóladæminu kæra Hrund.
Kveðja,
Guðrún Þorleifs
úff vonandi ertu búin að láta líta á uppáhaldsfrumburðinn og vonandi er þetta ekkert alvarlegt. En það á að taka svona ökuníðinga og híða þá á torginu, þeir eiga líka að missa ökuskírteinið og ég skal hjálpa þér að lemja hann.
knus til ykkar og takk fyrir helgina
Ég er ekert hrædd að Hrund þurfi hjálp að lumskra á einhverjum..
Ég vona að hún lagist hún Alexandra mín... vona að það verði allt í lagi með hana ...
Takk fyrir júrópartíið getum við ekki replayað þetta og haft aftur júrópartí
Bangsi Bestaskinn
heyrðu það er ekkert verið að segja frá þessum fábæru tónleikum sem þú ert að fara á :)
Peta
ég spara það fyrir næstu færslu ;)
hvenar verður næsta færsla ??
KV
Bestaskinn
Eitthvað að hjá svona fólki, bara gott að hún skyldi ekki slasast meira og vonandi batnar henni fljótt, annars gleðilegt sumar og hamingjuóskir með afmæli, knús, þöll
Send en kommentar