3. juli 2008

líf og fjör í Hrundar bæ

Hiti mældist hér 27,4 gráður í dag.
Skapið var gott fyrri hluta dags en tók að halla þegar líða tók á daginn sökum ósættis systra tveggja sem engan endi vildi taka.
Sunnanvindur blés frúnni niðrí miðbæ þar sem aðrar frúr voru einnig lentar og borðuð var alvöru ítölsk pizza og uppgjör dagsins sem og annarra daga gerð góð skil og talfæri þjálfuð. Þegar lægja tók,var haldið heim á leið.

Spá næsta sólahring:
Námskeið á morgun til að undirbúa gerð lokaverkefnis í fyrirtæki einu.
Veðurfréttum er lokið í dag. Veðurfréttir næst klukkan eitthvað seinna.
_____________________________________________________

Emilíana var að leika sjóræningja um daginn í leikskólanum. Hún naut sín í botn, kunni "hlutverkið" vel og fannst þetta rosalega gaman.

Hér í landi er börnum boðið upp á að prófa hinar ýmsu tómstundir á sumrin. Standa þá foreldrarnir einn tiltekin dag í júní í langri röð til að skrá gullmolana sína í einhverja iðju sem ekki kostar þau eyri, en börnin fá þannig að kynnast því sem þeim evt. langar að stunda að vetri til. Ísabella valdi að prófa tennis og hestbak. Eftir tvö skipti á baki er hún komin með bakteríu þrátt fyrir að vera í raun nokkuð hrædd við hesta.

Við Helga bökuðum kleinur mmmmm........ mín frumraun og svei mér þá ef kleinurnar líktust ekki bara MÖMMU kleinum.


Kleinusmakkararnir

Svona leit út hér einn seinni partinn og getur þá hver sem vill giskað á að það hafi verið líf og fjör innandyra og úti í garði....

Að lokum hér ein mynd af Steina og okkar aðal hjálparhellu, sama hvað það er sem við tökum okkur fyrir hendur.

6 kommentarer:

Anonym sagde ...

ÆÐI að Bella mín sé komin með ÆÐI fyrir hestum. Það má kannski bjóða henni á hann Glæsi minn næst þegar hún kemur í heimsókn til mín. Emilíana verður þá kannski bara að moka skít á meðan Ísabella prinsessast á hestbaki.

Falleg mynd af feðginunum hér neðst...sakna þeirra þegar þau eru svona falleg.

Hrund sagde ...

Ég trúi því nú Ragnhildur! það er eins gott að Glæsir þinn verði þá alveg rosalega vel tamin! og Emilíana yrði góð í skítamokstrinum,enda dugar í flest störf...

Helga Hin sagde ...

Hér í Helgukoti er húsfreyjan komin heim - heil á húfi og uppáhaldselstisonurinn kominn til Íslands - heill á húfi, þrátt fyrir ýmsar hrellingar s.s. flugseinkun, hótelgistingu og skordýraárás.
Nú erum við bara að njóta lífsins í botn og ekki byrjuð að taka til og þrífa!

pallilitli sagde ...

Vonandi fer Steini nú að blogga hér bráðum, bara til að bjarga þessari síðu. Mig langar ekkert til að vita hvernig veðurdagsspáin er klukkan einhvertíman. Flottar kleinurnar ykkar reyndar, og þá sérstaklega hennar Helgu. Kannski verður hægt að sjá það á Steina hvort hann hafi fengið einhverjar kleinur á bænum eða hvort þær fari allar í "sölu".
Skíta komment hér en í svipuðum skíta stíl ;-)

Anonym sagde ...

Hæ elsku Hrund, Gaman ad sjá myndirnar. Svakalega líkjast stelpurnar thér, thegar thú varst lítil. Thær eru svo sætar. Kær kvedja, Solla frænka.

Anonym sagde ...

Gangi ykkur vel í ferðalaginu! Hittumst í næstu viku!

Knús
Eva