
Og hvað segir þetta okkur! hvað getum við lært af þessu? tja ekkert svosem, bara hafa gaman af!Ég held ég geti alveg orðið Íslandsmeistari í þeirri dönsku kúnst að "binda inn bækur" eða "bogbinderi" það er sú iðja að setja utan um skólabækur þykkan gjafapappír ÁN þess að líma það fast á! Ég sló mitt eigið hraðamet og einnig var handverkið betra í ár en áður hefur sést hér á bæ.
Önnur iðn sem stunduð er á þessum bæ um þessar mundir er að þurrka þvott. það er nefninlega sér kúnst þegar rignt hefur í laaaangan tíma og rakinn í loftinu orðin ansi mikill. Ég er líka að verða færari í því. Alltaf að verða betri.
Á morgun á ein góð kona hér í bæ afmæli, en það er hún Sveinborg Petrína Jensdóttir sem fyllir einn tuginn. Óskum við henni til hamingju með daginn og vonum að hún lifi ferðalagið af inn í ellina!!
10 kommentarer:
Aha, thetta eru mjog gódar upplýsingar, alltaf gott ad vita svona lagad :)
Bid ad heilsa og skiladu afmaeliskvedjum frá mér :)
Guðrún Þorleifs þakkar upplýsingarnar ;)
Knús
Arrrggg... ég hata þetta bókarbinderý! Vita Danir ekkert um bókarplast? Þetta sem límist á og endist í mörg ár? Ég sat hér í gærkveldi og "pakkaði" inn bókum og hlustaði á óperu á meðan! :-)
Hæ frænka. áhugaverdar upplýsingar um fjølda íslendinga í Sønderborg. Hvadan hefurdu thessar upplýsingar ? Thad eru myndir á blogginu mínu af litla vidundrinu Veróníku, hún er voda sæt. kær kvedja Solla
Hæ hæ!!!
Datt í hug þar sem þú ert að slá um með þessari líka upplýsandi tölfræði, hvort þú gætir ekki fundið tölur yfir hvort fólk er hætt að kvitta á bloggsíðum. Síðan mín hefur aldrei haft meiri umferð en minna kvitt. Bara ekki að fatta ....
Gangi þér vel í þínu róleg lífi.
Kveðja,
Lata Kata
OHHHHHHHHH, þoli ekki byrjun skólaárs, vekja unglinginn, finna út úr öllu sem þau þurfa og svo að pakka inn þessum bókum!!!!
Gerði það á meðan ég var að horfa á tv og pirraðist illilega inn á milli en þetta er samt allt að koma ;-)
Eða það vona ég allavega fyrst að Viktor á eftir 10 ára skólagöngu og ekki einu sinni byrjaður....
Hlakka líka til að sjá þig eftir 2 vikur í geggjuðu partýi, ætla að taka með mér vasapening til vonar og vara, hi, hi, hver veit hvað maður getur keypt í Sönderborg...
Kossar og knús frá Köben!
Takk fyrir mig !!
Bestaskinn
hvað búa margir 34 ára sé það eru 4 30 ára :)
er með í deildinni að þola ekki að setja utan um bækurnar, hvað gerir fólk sem á 5 börn úffff, þöll
Ertu alveg á kafi???
Væri nú gaman að fá eitt og eitt blogg frá þér. Þurfa nú ekki að vera svo löng...
Kveðja,
Lata Kata
Send en kommentar