13. september 2008

Er fjölskyldan að stækka???

Nú ætla ég að segja ykkur hvað gerðist á sunnudaginn var.
Ég sat í eldhúsinu á nærbuxunum að glugga í vikulega fréttablaðið og gæða mér á morgunnæringunni og Emilíana naut sín fyrir framan imbann, allt í kyrrum kjörum, unglingurinn sofandi og hin tvö ónefndu á Íslandi.
MMMmmmm... notaleg kyrrð...þar til dyrabjallan rauf hana. Ég opna, fel mig auðvitað bak við hurð eins og sæma þykir þegar dyrabjöllu er hringt á Sunnudagsmorgni og frúin ekki komin í sunnudagspússið. Ókunnug kona með kött í búri stendur á tröppunum, á bjagaðri dönsku,segist hún vera nágranni minn og spyr hvort hún megi koma inn..... huhh...mmm...hmmm...jo jú.. vent lidt jeg skal lige have tøj på!

Á meðan ég skelli mér í meira viðeigandi fatnað, hugsa ég með mér að hún hlýtur að vera úr einhverjum sértrúarsöfnuði, eða kannski kreisí geðsjúklingur, eða sölukona hmmmm, allavega gleypi ég ekki alveg nágrannasöguna, þykist nú vita svona ca. hvernig fólk lítur út í húsinu á móti og fólkið hérna megin götunnar þekki ég nú alveg. Ohh nú hefði Steini, stóri og sterki þurft að vera heima. ansas, jæja en svo kurteis sem ég er læt ég ekki bláókunnugu konuna með köttinn standa lengi og bíða og dríf mig því að rífa upp hurðina aftur og bjóða konunni inn.

Hún leggur þá búrið niður, opnar það og segir. "se minn katt"(berist bjagað fram). Jú já já ég sé stóran og mikinn kött sem búið er að sleppa lausum inn á heimili mitt.

Býður hún mér þar næst að eiga dýrið. hún sé komin með ofnæmi og geti ekki haft hann. Tja hmmm já nú sko hmmm okey, já en ég verð nú að bera það undir manninn minn(já já við skulum ekkert vera að fara út í smáatriði, maður minn er hann þó það sé ekki til á skjali...) já og svona aðeins að kynnast honum og svoleiðis já.Við spjöllum og jú mikið rétt hún býr í blokkinni á móti, bara ská á móti, þar þekki ég ekki hræðu. Hún stekkur heim eftir kattarbakkanum og matnum og .....PASSANUM! haldiði ekki að þetta eðaldýr eigi sinn eigin passa! vissi nú ekki að slíkt væri til.

Konan reyndist vera hin yndælasta og kötturinn er hér enn, ber hann hið snobbaða nafn Gucci, sem reyndar er stytting á tveggja lína nafni, er 4ra ára fress af góðum ættum, er innflytjandi eins og við og skilur bara Rússnesku, er kafloðin Siamsköttur með risastór blá augu og kann að opna hurðir sjálfur. Einnig kann hann að rétta fram loppuna en ég kann ekki að biðja um hana því ég kann ekki rússnesku. Er ég því búin að skrá mig á kvöldnámskeið svo ég geti talað við kjörsoninn...

13 kommentarer:

Anonym sagde ...

Ha, ha, ha, ha! Hvernig datt henni í hug að banka akkúrat upp á hjá þér, góðhjartaðri konu???
Var hún búin að vera að njósna um þig og kynnast þínum eiginleikum eða var hún búin að banka upp á hjá öllum í götunni?

Vona að Steini verði ánægður með fjölskyldubreytingu þegar hann kemur heim og sér krúttið ;-)
Knús og kossar frá einni sem enn er að reyna að vinna í því að komast til þín í partý en það lítur ekki vel út :-(

Anonym sagde ...

ææ....hryllilegt að heyra. Og við Kári og Daníel vorum einmitt að spá í að fara að koma í heimsókn til ykkar, það verður víst ekki af því.

Anonym sagde ...

Haha þú ert nú alveg ótrúleg, hún hefur sko rambað á rétt hús :-) En þú kannt njet og da er það ekki, hehe, gangi þér vel, knús

Anonym sagde ...

Haha þú ert nú alveg ótrúleg, hún hefur sko rambað á rétt hús :-) En þú kannt njet og da er það ekki, hehe, gangi þér vel, knús

Anonym sagde ...

Jæja og fær þessi eðalköttur að búa hjá ykkur eða þarf rússneska frúin að fara í fleirri surprice heimsóknir?

Kveðja úr Humlehaven :)

Anonym sagde ...

er hun nokkud krúnurökuð?
snilld!

Hrund sagde ...

Konan bankaði hér uppá því hún vissi að svarta kisan okkar var horfin. Börnin höfðu víst spurt hana hvort hún hefði séð kisuna okkar. þess vegna vorum við líklegur kostur líklegast!!! og kisi hann fær að vera. Hann er barasta allt of sætur til að láta hann frá sér. já og fyrir fólk með ofnæmi eða ofsahræðslu gagnvart köttum,þá er ég nú svo heppin að eiga góða vinkonu hér í bæ sem hjálpar mér ef hún getur hverju sinni.

Anonym sagde ...

ooooo hvad thú ert heppin. ÉG ER EKKERT SMÁ ABBÓ, VID GETUM EKKI HAFT KØTT. Ole er med ofnæmi øv,.....

Anonym sagde ...

Þorir þú í rématsh ????

bestaskinn

Hrund sagde ...

hvað er það bestaskinn?

Anonym sagde ...

Skemmtilega saga he he.
Vonandi finnið þið lausn með köttin.
Kv.
Dísa

p.s. komin með nýtt blogg:http://www.123.is/disublogg/

Anonym sagde ...

Til hamingju með síamsköttin elskan. Þeir eru svo skemmtilegir þessir síamskettir. Þetta eru í raun og veru hundar sem fara í fýlu.

Ég sit hér í rúminu og minn síams er hjá mér og bíður eftir að ég leggi frá mér tölvuna og bjóði honum undir sængina. Honum er eitthvað kalt greyjinu. Heyrumst bestust
Kv Skagamærin

Anonym sagde ...

rématsh er náttulega hvort þú þorir í annað spil :)

nefndu stað ég kem eða þú kannski bara !!!

Bestaskinn