30. oktober 2008

lífsmark

Ég hef bara haft lítið að segja.
Jú jú það kemur alveg fyrir.

Annars er það að frétta að það er að verða búið að leggja drein í kringum kjallaraherbergið sem áður var gestaherbergi og er komandi Alexöndru herbergi. Það verður mikill munur þegar það er komið í lag og skvísan getur flutt niður og litlurnar fengið hvert sitt herbergið og ég fengið hjónaherbergið. Hef nú hugsað mér að deila því með mínum heittelskaða. Annars finnst mér voða notalegt að hafa vegg á þrjá kanta og kúra þar með Steina. já og Gucci.

Hér er lítið gert annað en að vinna í lokaverkefninu. Sofa, borða og horfa á Dagvaktina. Frábær síðasti þáttur, alveg hreint. Ég býð svo spennt eftir þeim næsta.

Annars var ég að spá í hvort við Íslendingar ættum ekki að taka okkur saman og fara í heimsókn til frændfólks okkar í Færeyjum. Þetta virðist vera hið vænsta fólk sem styður okkur meira en við styðjum hvert annað... Það væri nú huggulegt að kíkja í kaffi til þeirra og þakka þeirra ótrúlega gjafmildi.

10 kommentarer:

Anonym sagde ...

Já gott að fá nýja færslu. Vona að lokaverkefnið er þitt er að ganga vel :) og já ég er alveg til í að heimsæka frændfólk okkar í færeyjum :)

Anonym sagde ...

Þegar kreppan er búin að murka úr okkur lífið hér á Íslandi get ég sent ástmanninn út í vinnumennsku til ykkar - við að redda herbergi í kjallaranum.

kv. Ragnhildur

Anonym sagde ...

hæ hæ!!!
Hvenær er skiladagurinn fyrir vekefnið?
Kv. Begga

Anonym sagde ...

jæja já mér finnst að við eigum að gefa færeyskafélaginu í Sonderborg blóm fyrir hönd Íslands ... Það er sko margt gott sem kemur frá Færeyjum..margt ekki allt :)

Gangi þér vel með lokaverkefnið svo við getum farið til annas land að bruðla svolítið :)

Kv
Peta Bestaskinn

Hrund sagde ...

Já sendu bara ástmanninn út, ég get vel séð til þess að honum leiðist ekki!
Lokaverkefnið er á lokastigi og ber að skila því inn eigi síðar en klukkan 12 á mánudaginn..... og ég sé mánudaginn í hyllingum. Svo tekur við tveggja vikna undirbúningur fyrir vörnina. Nú og ef vörnin er góð, verður útskrift þann 28!!! En fyrst förum við Peta til útlanda ;)

Anonym sagde ...

Kvitt og kvatt!!!!
Mojn!!!
Ég!!!

Anonym sagde ...

Sorry, var löngu búin að sjá færsluna en ekki kvitta!
En nú heimta ég nýjar fréttir!!!!!!
Hvernig gekk verkefnið og svoleiðis......

Ég get aldeilis sagt þér fréttir!!
Ég er búin að finna íbúð og er þar með ekki heimilislaus 1. jan. og er virkilega að flytja frá rottuholu í höll :-)!!! Þú getur séð myndir á blogginu mínu!

Hlakka til að bjóða þér í mat í nýja eldhúsinu mínu sem verður vonandi sem fyrst ;-)

Anonym sagde ...

Til lukku með að vera búin að skila, og gangi þér vel að undirbúa vörnina.
Kv,
Dísa

Anonym sagde ...

Til hamingju með útskriftina Hrund - Ása Helgumamma!

Anonym sagde ...

Til lukku með skil og einkunn. Frétti að hún hefði verið flott.

En nú er komin tími á blogg, það er ekki eins og skólinn sé að taka tíma frá þér núna.

Kv. Ragnhildur