þessi að neðan er alveg ferlega flott og ætla ég ég læri að prjóna svona þegar ég er komin í holdarfar sem ber vel þykka peysu. Verð þessarar á núvirði krónunnar er 26.200!!!
Heima hjá ömmu var ruggustóll einn. Nýtískulegur af ruggustól að vera, eiginlega hægindastóll líka, örugglega faðir lazy boysins. Það var svo gaman að láta hann rugga eða snúast í hringi, eða festa hann í bakstellingunni og þykjast sofa. Hann var appelsínugulur með svörtu blómamynstri. Saga stólsins er sú að amma sem var heimavinnandi, langaði að gefa afa þennan stól. En ekki vildi hún að hann sem var fyrivinnan myndi greiða fyrir gjöf sína. Þess vegna prjónaði hún ullarpeysur og safnaði þannig fyrir stólnum fína.
Íslenskar húsmæður eru framtíð þjóðarinnar á þessum tímum. Á köldum vetrarkvöldum, þar sem búið er að segja upp sjónvarpinu og það innsliglað þar sem ekki er ráð fyrir afnotagjöldunum, geta konur komið sér fyrir í fína sófanum í fínu stofunni með myntkörfulánunum í húsi sínu sem þær nú leigja af ríkinu og prjónað íslenskar ullarpeysur. Þær senda eintök til aðalpersóna hinna vinsælu gamanþátta Klovn og biðja þá að vera í þeim á meðan á upptöku þáttanna stendur. Þar með er komin nær ókeypis auglýsing og peysurnar rjúka út eins og heitar lummur. Fjárhagsvanda íslensku þjóðarinnar er hér með reddað af íslenskum húsmæðrum vopnaðar prjónum og ullarspotta!
Ég hef ákveðið að sækja ekki um einkaleyfi á hugmynd þessari, heldur leyfa landi og þjóð að njóta góðs af henni og er þetta því mitt framlag til að bæta fjárhagsástandið.
10 kommentarer:
hehe
þú ert ráðagóð kerli mín.
Enn ég sit stressuð við að prjóna það sem við töluðum um, dauðhrædd um að verða ekki búin fyrir jól og líka smeik um að það passi ekki.
bæó frá tengdó
Hæ Hrund...og takk fyrir síðast...flott veisla hjá ykkur :).
Þú mátt sko alveg vera montin af tólfunni þinni - það eru sko ekki margir sem skora þvílikar tölur.
Kveðja Stína
Takk fyrir síðast Hrund, og ég er hrædd um að önnur lopapeysan sé ekki með íslensku munstri...eða það held ég a.m.k.
Kv.
Dísa
Verð að segja að ég kannast ekki alveg við þessi mynstur.
En mamma var einmitt að tala um þetta um daginn.
Við sátum í bíl fyrir framan búð og þar voru endalausar lopapeysur með fáránlegu munstri og þá sagði mamma að Íslendingarnir ættu að fara að senda þetta inn til Dk, því þetta væri greinilega í tísku.
Er óendanlega hamingjusöm með íslenska lopavestið mitt sem bónus amma mín prjónaði, það kostar ekki nema um 14 þús. ísl í fríhöfnininni........
Knús frá Köben!
hæhæ
ER sko farin að sakna þín :)
bangsi bestaskinn
Bestaskinn! hér er líka afar tómlegt án þín!
Hrund
Hæ hæ ;)
Efri peysan flokkast ekki undir hefðbundið íslenskt munstur.
Neðri er flott hönnun :)
Þú ert greinilega alhliða snillingur. búinn að redda skútunni. Bara að þeir í ruglogbull deildunum eypileggi ekki góða viðskiptahgmynd og breyti henni í sokka eða vasaklúta.
Góða daga :)
Kær kveðja frá Humlehaven
hva ekkert jóla blogg !!!
Bestaskinn
hva ekkert jóla blogg !!!
Bestaskinn
Send en kommentar