31. oktober 2007

Czecz ( eða bara halló)

Ég er þá búin að heilsa Póllandi í fyrsta skipti, en ekki það síðasta. Það var engin lygi að matur og þjónusta væri ódýrara þarna fyrir sunnan. Já og kristallinn. Svo nú er ég farin að safna kristalsglösum í munstrinu "Vetrarstjarna". fatnaður og flestar aðrar vörur voru á svipuðu verði og hér.

Ég komst að því að ég er hreinlega afmörkuð manneskja og renn ekki út í eitt með manni, börnum og heimili. Stórkostleg uppgötvun og nú er ég óstöðvandi. Er þegar farin að plana viku ferð á 4ra stjörnu heilsuhótel. Vill einhver koma með? við erum að tala um upphæð sem svarar til tveggja-þriggja stórra innkaupakarfa í Hagkaup, tja eða jafnvel Bónus. ( fyrir utan transport að vísu).

Myndir koma inn fljótlega.

Kæru vinir og vandamenn, þar til næst
Ekki lifa eins og kjötkássa. Lifðu eins og nautasteik.
Hrund

7 kommentarer:

Anonym sagde ...

Elsku dúllan!

Ég með á fjögra stjörnu hótel :) Á ég semsagt að byrja að spara?? og hvert á að fara?

Knús
Eva Björk

Anonym sagde ...

Nausynlegt að bregða sér aðeins af bæ við og við og Póllandsferðin var þrusugóð en ég get nú ekki sagt að ég sé farin að huga að annari húsmæðraferð strax.
Kveðja Hafdís

P.s það er ekkert smá mikið mál að kommenta hérna hjá þér, það tekst svona í fjórða hvert sinn hjá mér....eiga fleiri við þetta vandamál að stríða?

Anonym sagde ...

æ það er ekki gott að heyra! ég reyndi að skipta um kommentakerfi en þá klikkaði allt hjá mér, endilega látið vita ef það er erfitt að kommenta ( ef þið getið þá yfir höfuð kommentað !!!)
knús Hrund

Anonym sagde ...

Ó jú! Þau hverfa oft kommentin! :)
Knús
Eva Björk

Anonym sagde ...

hehe afmørkud manneskja... thu ert snilli LOL
kv. dagny

Anonym sagde ...

Það hljómar freistandi að koma með elskan. Segðu mér bara hvert og hvenar.
Knús úr dýragarðinum á skaganum

Anonym sagde ...

"Geissssssp"