7. december 2007

Lífið er yndislegt ég skrifa það sem ég vil

Hvað það er dásamlegt að það skuli vera komin föstudagur! alveg hreint yndislegt. Já yndislegt. Mér finnst indælt að vera í skólanum en indælla að vera heima. það er yndislegt að vera að mennta sig en yndislegra að eiga fjölskyldu. Hvað! sagðiru að ég væri nú farin að bulla enn einu sinni!! nei ekki aldeilis, ég er bara að æfa mig að skrifa rétt orðið yndislegt og indælt.... ég get bara ekki skilið af hverju það er ypsilon í einu en ekki hinu orðinu, var í vafa svo ég fékk eina góða frænku til að fletta því upp í orðabókinni sinni og svona á þetta að vera
yndislegt
indælt
Ég er alveg sannfærð um að Helga minn íslensku expert, geti sagt mér af hverju þessu er svona háttað. Ég var vön titlinum "íslenskufræðingurinn" og sögðu vinkonurnar heima að ég yrði íslenskufræðingur þegar ég yrði stór. En 11 ára búseta í öðru tungumálaumhverfi er farin að setja sín spor á tilfinningu mína fyrir móðurmálinu. Kannski gerist ég bara dönskufræðingur. Dejligt i skolen, dejligt derhjemme, vidunderligt at gå i skole, endnu mere vidunderligt at have en familie....
Ísabella spurði um daginn: " mamma hvaða dagur er í dag?"
ég svaraði sannleikanum samkvæmt: " það er þriðjudagur"
Ísabella: " nei mamma það er fjórðudagur...."
(Fjórði des var á þriðjudegi og þar sem hún hafði opnað dagatalið um morguninn vissi hún sko að það var ekki þriðjudagur heldur fjórðudagur þann daginn...)

9 kommentarer:

Anonym sagde ...

Hahaha... algjört krútt, fjórðudagur :o) Til hvers eiginlega að vera að rugla þessa daga með einhverjum nöfnum ;o)

Skil þig vel með stafsetninguna, þú ert búin að búa hér miklu fleiri ár en ég og ég er farin að rugla... ég sem þoli ekki stafsetningarvillur!!!

Knús... sæta mín.
Kveðja Ágústa.

Anonym sagde ...

Innlitskvitt á sjöundadegi :)
Góða helgi!

Helga Hin sagde ...

Jahá, ég get sko alveg sagt þér útaf hverju þetta er skrifað svona mismunandi: Af því bara! Það er þessvegna! Eða að það sé vegna þess að yndi er dregið af unaði en indælt er það ekki. Hmmm....

Já, góða helgi bara!

Hrund sagde ...

köllum bara dagana eftir númeri í vikunni og byrjum að fyrstudag á mánudögum og afnemum ypsilonið, er ekki bara komin tími fyrir svona nýjungar í íslensku tungunni;)

Anonym sagde ...

OK það er þá sjöundi dagur í dag, líst vel á þær breytingar.

Gaman að hitta þig áðan

knus

Anonym sagde ...

hei gleimdi eru engar mindir frá póllandi?

( varstu ekki annars búin að afnema Y ?)

Anonym sagde ...

já 11 ár ótrúlegt, við líka, knús, Þöll

Anonym sagde ...

Kvitta fyrir komuna! Já! Hvar eru myndirnar frá Póllandi.

Ég vil nú ekki missa ypsilonið. Búin að leggja mikið á mig að læra þetta. Þó svo maður klikki stundum.

knús

Anonym sagde ...

Hver kommentaði síðast???