16. januar 2008

BESTÅET!

þá er prófinu lokið, og ég náði því!!!!!!! JIIIIIBBBBBÍÍÍÍ!!!!!!

Ég fer ALDREI aftur í mínu lífi í svona próf aftur. Guði sé lof! Eins gott að ég náði, því svona próf vil ég ekki fara aftur í. Þeir sem vilja vita meira um hvernig prófið fór fram er bent á þetta blogg: http://helgaogpalli.blogspot.com/2008/01/mikil-spenna.html. Það er mjög svo skemmtileg færsla og ég hvet ykkur til að lesa hana ;)

Ég var í fríi í gær, daginn eftir prófið þar sem restinn af bekknum var í prófi þá, en var meira og minna niðrí skóla að heppa á hina félagana og vera þar til að fagna með þeim, hvert af öðru sem kom út úr prófi, búin að ná! Af 13 manna hóp, féll einn og erum við því besti bekkurinn sem hefur verið á skólanum. Aldrei hafa eins margir náð þessu prófi! við erum svo stollt ;) held það sé mikið því að þakka að við erum ótrúlega samrýmdur bekkur, mjög hjálpsöm og áhugasöm um að allir nái.

Í dag áttum við að byrja á síðustu önninni. En kennararnir voru veikir, sem betur fer fyrir þá sem voru í prófi í gær, ömurlegt að fara í próf og byrja svo á næsta kafla daginn eftir, við varla búin að eiga jólafrí, hvað þá helgarfrí undanfarið. Á morgun verður víst aftur frí af "tæknilegum ástæðum" hmmmm.... hvaða tæknilegu ástæður gæti það verið?????

Fagnaði frídeginum með verslunarferð til þýskalands, náði þar í ódýran mat og annað smátterí. Þar sem við vorum öll komin heim snemma hóuðum við í Helgu,Palla og syni, Valey og Þórunni og skelltum í eina súkkulaðiköku ásamt pönnsum og höfðum það huggulegt. Mjög góður frídagur verð ég að segja, ég tala nú ekki um þar sem hann var með öllu án samviskubits yfir að vera ekki að læra!

Ég þakka hamingjuóskir á fyrri færslu og tek glöð við fleiri hér ;) I'm the BEST!!! tja allavega nokkuð "GOOD".....

7 kommentarer:

Anonym sagde ...

Til hamingju með árangurinn :o)Frábært hjá þér.

Knús...

Anonym sagde ...

Til lukku með árangurinn. Gott að þetta er búið.

Anonym sagde ...

Glataða kerfi. Þú ættir nú að forrita þetta svo það virki sem skyldi. Þetta var sem sagt Ragnhidur hér fyrir ofan

Anonym sagde ...

innilega til hamingju... thu ert lika best :)
kv. dagny

Anonym sagde ...

til hamingju aftur elskan, þú ert æðis

kveðja úr dýragarðinum á skaganum

Anonym sagde ...

Innilega til hamgingju með árangurinn... Dásamleg tilfinning að klára svona hluti, tala nú ekki um þegar þeir enda vel.
Kv. Begga Knútsd.

Anonym sagde ...

Innilega til hamingju með árangurinn, frábært og gaman að njóta þess á eftir, knús og kossar og takk aftur fyrir afmæliskveðjuna, Þöll