það eru nú að koma páskar og þar sem heimilið er ekki gult varð ég að gera pínu páskalegt hér á síðunni.....
Tara er í pössun hér yfir páskana.
Tara er sæt tík
Klara er ósáttur köttur
Klara kvæsir og klórar í Töru
Tara er hrædd við Klöru
Tara er fimm sinnum stærri en Klara
Tara borðar Klöru mat
Klara borðar Töru mat
Lambalærið að þyðna inní ísskáp
Páskaeggin komin þökk sé Helgu og mágkonu hennar, öll heil ;)
Ég er farin út að labba með hundinn
stórt knús
19. marts 2008
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
5 kommentarer:
Hehe, vona að það fari ekki allt í hund og kött hjá þér yfir páskana, knús þöll......flottur guli liturinn :-)
Þetta hljómar eins og lærum-að-lesa bók! Hahahaha..
Og maður skrifar "þiðna". Okkar læri (af lambi) voru sett aftur í frysti því það var ákveðið að hafa naut í matinn á páskadag og eigum við því tvö lambalæri til góða seinna meir. Ekki slæmt það þar sem það er langt þangað til við förum til Íslands næst.
Gleðilega páska, og ég vona að páskaeggin fari vel í maga :-)
Oh, ekki gaman með kisur og voffa sem ekki kunna vel við hvort annað!!!
Þó ég sé hér á Íslandi er ég búin að steingleyma að kaupa páskaegg og samt eru þau hræódýr í augnablikinu!!
Er samt búin að kaupa handa Viktori og það er víst mikilvægast eða hvað????
Er bara búin að vera á kafi í fermingarveislum og svoleiðis!!!
Sit hér um miðja nótt að reyna að semja ræðu fyrir morgundaginn en gengur illa......
Gleðilega páska!!!
Páskaknús frá Elísabet og synum á klakanum!!
hva ekkert páska blogg
ertu ekki að standa þig !
Takk fyrir okkur í dag eins og aðra daga
Bara svo þið vitið það þá eru alltaf nýbakaðar kökur hjá Hrund
ekki að spyrja af dugnaðnum
Sæl skvís!
Takk fyrir afmæliskveðjuna.
Hef bara link á það sem ég skrifaði á síðuna mína, þetta er í læstum aðgangi á Mogganum.
http://klakabuinn.bloggar.is/blogg/325331/
En ef þú ert með aðgang þá lætur þú bara leita að nafninu mínu og þá kemur hún upp.
Vona að lærið hafi bragðast vel og köttur og hundur hafi endað eins og í Hálsaskógi, þar sem öll dýrin eru vinir.
Kv. ég
Send en kommentar