
Þar sem vorið er komið hér í Danaveldi og gróðurinn farin að spretta upp á fullu, er maður nú farin að kíkja út í garð og spá og spekúlera hvernig við getum gert hann meira aðlaðandi. Þegar við fluttum inn voru ógrinnin öll af blómabeðum og runnum. En þar sem ég er ekki með græna fingur og vill helst ekki fá brúna fingur og er þar af leiðandi ekki dugleg að reita arfa og klippa runna, og þar sem Steini nennir ekki svoleiðis "dútli" og vill heldur taka fram skóflu og sýna karlmennsku sína í að rífa upp heilu trén með rótum, höfum við smátt og smátt fækkað beðunum. Í gær tókum við síðasta hlutann af einu mjög stóru beði sem var hér. það var mikil vinna og get ég varla gengið fyrir harðsperrum!


Dagurinn í dag fer svo í skrifstofumál og skrifa ég einmitt þessa færslu meðan ég hlusta á fagra klassíska tónlist hjá Told og Skat...
Verið sæl að sinni og njótið frísins þið sem fáið slíkt.
11 kommentarer:
Mikið eruð þið dugleg í garðinum! Verð að kíkja í heimsókn bráðlega og sjá afraksturinn.
Bara framkvædir.... Manni hlakka nú bara til að komast heim í vorið og garðinn sinn þegar maður les þetta.
Knús og gleðilega páska.
Dísa
Helga pelga! endilega kíkja í heimsókn, ég skal laga kaffi og bjóða þér út í garð!
og Dísa, þetta er sko allt spurning um vogarskálina, hvort vegur þyngra, garðurinn eða ættingjarnir.... hmmm eða hvað sem maður getur nú sett á vogarskál og borðið saman ;)
úff já þessi garður, nú er okkar fullur af felldum trjám :-% njótið frísins, knús þöll
Fallegar stelpur þarna á myndunum....sá ekkert annað, átti maður að sjá eitthvað annað?
Ohhh við erum orðin svo spennt að koma. Hlakka til að kynna ykkur fyrir þeim sætasta í flokki ungbarna meða eða án fitufellinga á lærum.
kv.Ragnhildur
Vá hvað þú hefur þurft að bíða lengi hjá Told og skat...... hringdu sem oftast í þá ...... þá verður alltaf nýtt blogg hérna!!!! He heh eeee svoooo fyndin!!!!
kv....
ég
Hey honney... Við erum með gott safn af klassískri tónlist í tölvunni sem þú getur hlustað á og þú þarft ekki að vera að hringja í Told&Skat til þess.
Steini
Vorið bara komið þarna suðurfrá hjá ykkur, og fallegustu stelpurnar í Danaveldi eru þarna líka. Kv amma Gerður
úúú hvað sætar stelpur :D
Duglegir foreldrar!
knús
Eva Björk
úúú hvað sætar stelpur :D
Duglegir foreldrar!
knús
Eva Björk
Hæ Hrund
takk fyrir spjallid um daginn. Gaman og gott ad heyra í ther. Allt of langt á milli. Gaman ad sjá sætu stelpurnar ykkar.
Kærar kvedjur, Solla
Send en kommentar