17. marts 2008

Góð og gefandi helgi er nú á enda og við tekur langt páskafrí. Á laugardeginum hugsuðu sumir eins og ákváðu að kíkja í heimsókn hingað með bakarísbakkelsi og var því mikið spjallað og mikið borðað. Um kvöldið ákváðum við Steini að bregða út af vananum og fórum í göngutúr niðrí bæ með litlurnar.

Þar sem vorið er komið hér í Danaveldi og gróðurinn farin að spretta upp á fullu, er maður nú farin að kíkja út í garð og spá og spekúlera hvernig við getum gert hann meira aðlaðandi. Þegar við fluttum inn voru ógrinnin öll af blómabeðum og runnum. En þar sem ég er ekki með græna fingur og vill helst ekki fá brúna fingur og er þar af leiðandi ekki dugleg að reita arfa og klippa runna, og þar sem Steini nennir ekki svoleiðis "dútli" og vill heldur taka fram skóflu og sýna karlmennsku sína í að rífa upp heilu trén með rótum, höfum við smátt og smátt fækkað beðunum. Í gær tókum við síðasta hlutann af einu mjög stóru beði sem var hér. það var mikil vinna og get ég varla gengið fyrir harðsperrum!





Dagurinn í dag fer svo í skrifstofumál og skrifa ég einmitt þessa færslu meðan ég hlusta á fagra klassíska tónlist hjá Told og Skat...
Verið sæl að sinni og njótið frísins þið sem fáið slíkt.

11 kommentarer:

Helga Hin sagde ...

Mikið eruð þið dugleg í garðinum! Verð að kíkja í heimsókn bráðlega og sjá afraksturinn.

Anonym sagde ...

Bara framkvædir.... Manni hlakka nú bara til að komast heim í vorið og garðinn sinn þegar maður les þetta.

Knús og gleðilega páska.
Dísa

Hrund sagde ...

Helga pelga! endilega kíkja í heimsókn, ég skal laga kaffi og bjóða þér út í garð!

og Dísa, þetta er sko allt spurning um vogarskálina, hvort vegur þyngra, garðurinn eða ættingjarnir.... hmmm eða hvað sem maður getur nú sett á vogarskál og borðið saman ;)

Anonym sagde ...

úff já þessi garður, nú er okkar fullur af felldum trjám :-% njótið frísins, knús þöll

Anonym sagde ...

Fallegar stelpur þarna á myndunum....sá ekkert annað, átti maður að sjá eitthvað annað?
Ohhh við erum orðin svo spennt að koma. Hlakka til að kynna ykkur fyrir þeim sætasta í flokki ungbarna meða eða án fitufellinga á lærum.

kv.Ragnhildur

Anonym sagde ...

Vá hvað þú hefur þurft að bíða lengi hjá Told og skat...... hringdu sem oftast í þá ...... þá verður alltaf nýtt blogg hérna!!!! He heh eeee svoooo fyndin!!!!

kv....

ég

keidayoko sagde ...

Hey honney... Við erum með gott safn af klassískri tónlist í tölvunni sem þú getur hlustað á og þú þarft ekki að vera að hringja í Told&Skat til þess.

Steini

Anonym sagde ...

Vorið bara komið þarna suðurfrá hjá ykkur, og fallegustu stelpurnar í Danaveldi eru þarna líka. Kv amma Gerður

Anonym sagde ...

úúú hvað sætar stelpur :D

Duglegir foreldrar!

knús
Eva Björk

Anonym sagde ...

úúú hvað sætar stelpur :D

Duglegir foreldrar!

knús
Eva Björk

Anonym sagde ...

Hæ Hrund
takk fyrir spjallid um daginn. Gaman og gott ad heyra í ther. Allt of langt á milli. Gaman ad sjá sætu stelpurnar ykkar.
Kærar kvedjur, Solla