9. april 2008

Ömmusystir

Ein sagði við mig um daginn að hún hefði of mikinn frítíma. Ég á of lítinn frítíma. Samt höfum við jafn mikinn tíma til umráða. En hvað er annars frítími? hvað er andstæða frítíma? vinnutími?
Er frítími þá þegar maður er búin í vinnunni/skólanum? Hvað eru heimilisstörf þá? er það ekki líka vinna? ef ég er að gera eitthvað sem ég þarf að gera, er það þá frítími minn? eða er það frítími þegar börnin eru sofnuð og maður sest fyrir framan tölvuna til að blogga?Jú það er alveg öruggt frítími.

Í fyrradag, 7 apríl, varð ég ömmusystir í annað sinn! Ég veit ykkur finnst það rosa skrítið eins ung og ég er og ekki batnar það þegar ég segji ykkur að það er hún yngsta systir mín sem á dóttir sem er að gera mér þetta trekk í trekk!!! Nú og dóttir elstu systur minnar fetur í fótspor frænku sinnar og kemur með stelpu 7 júlí samkvæmt plani. Hér að neðan, þrívíddarmynd af prinsinum nýfædda en ég er ekki enn búin að fá mynd af honum utan legs...

Heimþráin sterk og mig dauðlangar að sjá litla frænda minn.

Það er margt skemmtilegt að gerast þessa dagana,grasið er tekið að spretta og Lorens nágranni var að prufukeyra nýja "slátturvélartraktorinn" áðan. Um síðustu helgi héldum við uppá að örverpið varð 4ra ára! Hún var alsæl með daginn, naut athyglarinnar og leikfélaganna, elskaði gjafirnar og var bara algjör sólargeisli. Það komu margir góðir gestir og hægt að skoða fleiri myndir frá deginu hér . Eða í albúminu hér við hlið.




Í skólanum er ég að gera spennandi forrit í gsm síma. Reyndi að nota það sem afsökun til að fá mér nýtískulegri síma, en allt kom fyrir ekki, kennarinn neitaði að þess væri þörf og Steini beit ekki á agnið. Þá hefur mín góða samviska það ekki í sér að fara út og eyða pening í jafn óþarfaþing og nýjan síma þegar fornaldargripurinn minn virkar vel...það er nú líka þannig að í gamla daga var allt handverk betra, húsgögnin voru sterkari, gemsarnir endingarbetri og steik á sunnudögum.

Annars fæddi Danielle strák í kvöld, hún missti vatnið í Hrekkjarvökupartýi, Lynette fékk að vita að hún væri laus við krabbameinið, Gabrielle reyndi að fara frá Victor án árangurs og Susan komst að því að tengdapabbi hennar væri ekki dáinn heldur sæti í fangelsi með lífstíðardóm yfir sér fyrir manndráp. Já það má með sanni segja að þær eru aðþrengdar þessar elskur.


9 kommentarer:

Anonym sagde ...

Hér sitjum við mútta og lesum þessar sögur af þeim aðþrengdu. Hér á Íslandi er nú ein sögupersónana dauð og önnur til, sú næsta er blind.
Við nefnum engin nöfn en gerum passlega ráð fyrir að þú sért að deyja úr forvitni núna. mú ha ha ha

kv. Ragnhildur og Gerður

Anonym sagde ...

Til hamingju með litla frænda!! Skil vel að þig langi heim að sjá hann og knúsa :)
Litla afmælissnúllan þín alltaf jafn yndisleg :)
Varðandi Gemsa þá styttist líftími þeirra eftir því sem þeir verða fullkomnari.
Ha ha ha svo hló ég þegar ég las þetta neðsta. Ég horfi svo lítið á sjónvarp. Hélt fyrst að þú værir að segja fréttir af bekkjasystrum þínum. En fannst þetta síðan orðið ögn of dramatískt fyrir danskt samfélag ;)
Knús
Guðrún Þorleifs

Helga Hin sagde ...

Já og svona til að jafna leikinn þá get ég sagt þér að Jason var frábær í gærkveldi, David Cook - uppáhaldið mitt, var ekki eins góður og í síðustu viku. Ayesa var frábær, er alltaf að bæta sig og ég vona að hún Kristy Lee detti loksing út. Alveg kominn tími á hana.
Þetta er nú helst að frétta úr Idolinu.

Anonym sagde ...

Elsku Hrund
Til hamingju med dóttlu og med litla frænda.
Gaman ad sjá myndirnar.
Sá restina af sama thætti en var samt adeins lengur ad kveikja, en ég ætti ad kannast vid. Ups.
kær kvedja Solla

Anonym sagde ...

Gott að allt gegnur vel !
Hvenar færð maður að prufukeura forritið þitt :)
verður það fyrir nokia eða ericson ? eða kannski samsung ?

Talandi um dramatík þá er sko nóg af henni í DK !
Aðþrengdar eru ekki alveg að ná því

kv
Peta Jörgenssen

Anonym sagde ...

mér finnst hommarnir líka frábærir.
eru lika hommar í sönderborg?

kv. Dagný

Anonym sagde ...

Bíddu þangað til þú verður Laaaangömmusystir - ég er nú þegar 6 föld svoleiðis og við bætast 7 og 8 í sumar - og ég bara 35!!!!!!!!!
Aðþrengdar hvað?????
Ása "HelguogÞórunnarmamma"

Anonym sagde ...

Ömmusystir!!!! Þurfti að lesa þetta þrisvar til að ná þessu...... getur bara ekki verið!!!! Passar ekki!!!!

........ ó mæ god..... þið eigið eftir þáttinn um "hurrikeininn" (man bara ekki hvað þetta heitir á íslensku eða dönsku!!!) ...... það er sko spennandi þáttur!!!!! Bara hægt að láta sér hlakka til hans!!!!

Góða helgi af Klakanum.

ég

Anonym sagde ...

Húsmóður og móðurhlutverkin kallast ekki frítími nema það sé eitthvað sem manni langar til að gera!!!!
Ég hef sem sagt aldrei frítíma nema rétt á meðan ég sef og þó hef ég ekki haft það undanfarið vegna veiks stráks sem skríður upp í til min og vælir alla nóttina af vanlíðan, greyið!!

Þú færð nú samt vonandi frítíma 26 apríl eða er það ekki pottþétt??

Til hamingju með minnstuna, finnst hún hafa verið nýfædd í gær!
Knús og kossar frá mér sem hlakka til að sjá þig eftir smá!!
Elísabet