21. april 2008

það sem var, það sem er og það sem mun koma

Í morgun kvaddi ég tengda-fjölskyldu mína sem hefur verið hjá okkur síðan á miðvikudaginn. Þau komu hingað öll að fagna sextugsafmælisdegi tengda-Gerðar. það er búið að vera mikið fjör en samt rólegt, jú það ER bæði hægt!!! Svila-Daníel hjálpaði Steina með að fjarlægja óþarfa loftnet af þaki hússins og ”óþarfa” vinnuskúr.Hann hefði nú bara getað spurt mig .......NOT!
Klara fór í pössun og þar tók hún upp á því að breima og stökk niður af annarri hæð útum smá rifu til að komast á lóðerí, en skilaði sér þó þangað aftur. Ísabella leið yfir að amma og afi séu farin en ánægð með að kisa sé komin.
Stundataflan fyrir þessa skólaviku var send með email til okkar bekkjarsystkyna klukkan 7:58 og áttum við að mæta í morgun kl. 8... ég nett fúl út í viðkomandi kennara þar sem mér finnst þetta agalegt virðingarleysi við okkar tíma. Væri allt í lagi ef maður gæti bara hringt og pantað læknatíma eða annað og sagt ” ég kem bara þegar ég er búin í skólanum á fimmtudaginn...”hmmm. Eða við vinnuveitandann:” ég mæti bara þegar ég er búin í skólanum...” Hann baðst ekki einu sinni afsökunar.

Á fimmtudaginn á ég að skila vefsíðu þar sem fólk getur upplódað myndum á netið. Svo erum við bekkurinn að gera forrit fyrir nágranna kommúnuna þar sem hægt er að skrá og sjá tölfræðilegar upplýsingar símtala inn og út úr kommúnunni. Þriðji stóri boltinn í loftinu er svo þetta forrit í gsm síma, einhver upplýsingatækni sem ég uppljóstra ekki meira um... vil ekki að neinn steli þessari líka brillíant hugmynd sem er nú komin frá Kerfisfræðingnum í Kolding, henni Evu ;)
Það er líka meira kapp á að við vinnum alla heimavinnu núna... já og svo förum við alveg að fara að fá í hendurnar fjórðu annar prófverkefnið sem við byrjum þá á.
Þetta er Hrund sem tjáir sig rafrænt úr skólastofunni þar sem stressið reynir að þrýsta sér í gegnum þykkan vegg kvefs og beinverkja á meðan sólin skín glatt inn um gluggana.

8 kommentarer:

Anonym sagde ...

hæhæ

Já mér finnst þetta líka agalegt virðngaleysi af kennaranum, því ég tók ekki skólatöskuna mína með þar sem ég vissi ekki að það voru tímar eftir hádegi hjá mér.

En gangi þér vel í öllum þessum verkefnum sem þú ert í :)

Anonym sagde ...

Elsku Hrund mín!
Hjartans þakkir fyrir þessa góðu daga, hlýjar kveðjur til allra frá tengda, ömmu Gerði

Anonym sagde ...

Úff já..... gjörsamlega algert virðingarleysi!!!! Þetta segi ég líka alltaf um fólk sem er of seint.... ber enga virðinu fyrir tíma annarra!!!! Ég er oftar en ekki of sein....... en það er annað!!!!

Vona að kvefið og stressið fái vængi og fljúgi af stað út í sólina!!!!

Hils pils.....
ég

Anonym sagde ...

Segi bara eins gott að ég var ekki með Alexsöndru í gæslu !!

Hefði ekki viljað skila henni óléttri heim :)

En það var gaman að hafa klöru hérna !!!

Þú veist hver ég er !

Helga Hin sagde ...

Skál! já eða bara kvitt!

Anonym sagde ...

Gangi þér vel með þessi verkefni...ég er viss um að þú rúllar þessu upp!

Sumarkveðjur,
Dísa

Anonym sagde ...

Innlitskvitt og takk fyrir góðann pistil að vanda :)
Knús
Guðrún þ.

Anonym sagde ...

Hæ elsku Hrund. Voðalega finnst mér ég eiga flotta og klára systir, á kafi í einhverjum forritum sem enginn annar skilur neitt í. Ekki það að mér hafi ekki fundist þetta um þig áður......
En núna langaði mig bara að nota tækifærið og þakka þér kærlega fyrir allt sem þú lánaðir henni Emilie fyrir komandi ömmubarnið mitt. Það munar ekkert smá um að fá þetta, þú ert einfaldlega YNDISLEGUST. TAKK, TAKK, TAKK,
Saknaðarkveðjur, Hildur.