Ég er í bloggstuði. Já það er sko bara alveg hreint ótrúlegt að ég skuli vera komin í bloggstuð eftir svona bloggleysi. Það mætti líka snúa þessu við og segja að það sé alveg hreint ótrúlegt hvað ég hef bloggað lítið undanfarið, manneskja með jafn mikla tjáningarþörf og ég!
Í dag var 21 júní.
Kannski ekkert svo merkilegt
Lengsti sólardagur ársins reyndar
Já og svo það að tvær stórmerkilegar konur eru fæddar þennan dag.
Mamma mín og ég!
Bara með 30 ára millibili.
Við mamma eigum litla frænku, hana Evu Maríu sem á líka afmæli í dag, hún er 21 árs í dag.
4 árum áður en hún fæddist, dó frænka okkar hún Salvör sem fædd var 21 júní, hún hefði orðið 110 ára í dag!
Salvör var systir afa.
Fyrir Evu Maríu er mamma systir afa hennar. Þannig að ekki nóg með að við Eva María eigum sama afmælisdag, heldur eiga afasystur okkar sama afmælisdag og við! þetta þykir örugglega stórmerkilegt í augum numerolog [ hvað skyldi það nú heita á íslensku, einhver sem veit það??númerafræðings...hmmm]
Þar til ég flutti frá eyjunni fögru til Danaveldis, héldum við mamma alltaf uppá daginn saman. Sannkallaðir tvíburar, með 30 ár á milli sín, fæddar undir merki tvíburanna.
Pabbi var vanur að gera alltaf mikið út úr deginum eftir að ég hætti að halda uppá hann með fjölskylduboði. Þetta var auðvitað stór dagur þar sem tvær af hans 5 stelpum áttu afmæli. Við fengum óskipta athyglina og alltaf valdi ég kjúkling í matinn. Já því réði ég, því samkvæmt mömmu þá hætti hún að eiga afmæli þegar ég fæddist og er því 29 ennþá!
Það var einn afmælisdaginn minn, fyrir 7 árum síðan að við Steini settum upp hringana í lágu kjarri í fallegum skóg í lignu veðri við sólsetur, afar ástfangin. Og kirkjugólfið er enn ótroðið...
Eitt sinn var ég svaramaður á afmælisdaginn minn.
Áður var hásumar 21 júní og allir komnir í frí og fjölskylduboðin því stundum fámenn og útsölur voru óþekkt fyrirbæri á þessum árstíma.Núna eru útsölur og skólinn ekki enn komin í sumarfrí.
Eitt sinn gerði ég snjókarl upp í Munaðarnesi á þessum merka degi ársins.
Takk fyrir afmæliskveðjur, hvort sem voru í kommentum, smsum, símanum, með knúsi eða msn. Úff hvað ég er nú slæm að muna ekki alltaf eftir ykkar degi (roðn)
21. juni 2008
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
13 kommentarer:
Elsku Hrund, hjartanlega til hamingju með afmælsidaginn þinn og mömmu þinnar. Skemmtilegt hvernig afmælisdagar geta raðast í fjölskyldum.
Jakob hennar Ingunnar er 20 ára í dag svo ég mun líklega framvegis muna tugina þína líka ;)
Kærar kveðjur úr nágreninu,
Guðrún Þorleifs
Góða nótt afmælisbarn.
Koss frá tengdóinu.
Sæl Hrund - til hamingju með daginn - þetta er afskaplega merkilegur dagur - 21.júní - þaennan dag fyrir mööörgum árum giftu mamma og pabbi sig - og fyrir 39 ári - nei það getur ekki verið ég er bara 35 - setti ég upp hringana með mínum heittelskaða (sem var þá)!!!!
Kveðjur úr norðannepjunni!!!!
Ása (Helgumamma)
Happy Birthday honney.
Já það má segja að það sé magnaður dagur þessi 21.Júní... Ég held að það séu Jónsmessuáhrifin og hæð sólarinnar á þessum tíma árs.
Það er engin spurning að fólk sem fæðist um miðjan Júní er einstakt, alveg eins og þú.
Steini
Til hamingju með afmælið. Skemmtilegar minningar hjá þér sem tengjast þessum degi í gengum árin :o)
Knús..
Innilega til hamingju með daginn í gær! Gangi þér svo vel að læra.
Dísa
Guð hvað ég er gleymin!!!Ég gleymdi afmælinu, ég mundi það á fimmtudaginn en setti ekki reminder í símann. Fyrirgefðu ljósið mitt.
Til hamingju með daginn þinn, vona að þú hafir haft það mjög gott elskan.
Hlakka til að heyra í þér mjööög fljótlega. Knús á fjölskylduna þína
Kveðja af Akranesi
Hey til lukku.
Tek skilaboð Steina hér að ofan til mín líka. Enda er ég sannkallað afmælisbarn dagsins í dag.
-Ragnhildur
knús afmælisbarn!
Var ekki gaman á afmælinu!
Gangi þér vel á morgun! Knús
Til hamingju með einkunina!
iNNILEGAr hAMINGJUÓSKIr mEð áRANGURINnnnn, lITLa sYSTIr !!!!
kVEÐJa, Hildur sTÓRA sYSTIr
Elsku Hrund
til hamingju med afmælid. Mér tókst ekki ad fá litlu á afmælisdaginn thinn, en hún var sett á thann dag. kær kvedja til ykkar, Solla
Send en kommentar