1. juni 2008

Hárfínn söngur

Enn allt á fullu á þessum bæ. Skrifa þessar línur á meðan ég býð eftir að geta opnað ritgerðina sem ég skila á morgun, en hún er svo stór að Word ræður varla við þetta...
Fór á sumarshow á hárgreiðslustofu einni hér í bæ með Petu, síðastliðin fimmtudag. Þar var eitt módelið sem bar af öllum hinum, það var engin önnur en Alexandra. Þetta var allt hið flottasta, tapas og kokteilar lige til að þamba...mmm... magadans og gaman.






Á fimmtudaginn verður tekið smá frí frá daglegu amstri ( í miðju prófverkefni!!!), skutlast til Køben með Petu á tónleika með engri minni frægari eða betri en sjálfri Celine Dion! (nú er Hildur örugglega svolítið öfundsjúk...). Ég dýrka þessa söngkonu alveg hreint, ekki síst þegar hún syngur á því fagra máli frönsku, vona að hún taki þó ekki sé nema eitt lag á frönsku. Já já og Óli er bara besti gæji í bænum og Peta hans líka ;)
Þetta er Hrund sem kveður úr heitri skólastofunni, sátt við góða ritgerð og gott verkefni.






9 kommentarer:

Anonym sagde ...

4 dagar hlakkar þig nokkuð til ??
Mig hlakkar alla vegna til . Gott að skilja börnin okkar eftir hjá pöbbunum á pabbadaginn.
Óla Sól er búin að fatta það á pabba daginn á pabbi að gera allt fyrir hana ...
Peta

Anonym sagde ...

4 dagar hlakkar þig nokkuð til ??
Mig hlakkar alla vegna til . Gott að skilja börnin okkar eftir hjá pöbbunum á pabbadaginn.
Óla Sól er búin að fatta það á pabba daginn á pabbi að gera allt fyrir hana ...
Peta

Anonym sagde ...

Ekkert smá flott, skvísan!! Og já, ég öfunda þig af tónleikunum, vildi að ég væri að fara með þér... sé okkur alveg í anda syngjandi hástöfum "Pour que tu m'aimes encore..." o.s.frv. Ég er annars nýkomin úr sveitasælunni í Bolungarvík, var svaka fjör og góð hvíld inn á milli. Gangi þér vel með verkefnið. Knús knús, Hildur

Anonym sagde ...

Frábært að þú ert sátt við verkefnið og búin með það, til hamingju með það, frábært að þú ert að fara að sjá Celine, góða skemmtun og frábært hárið á Alexöndru, hún er svo flott, knús frá þöll

Anonym sagde ...

Vá, hvað dóttirin er flott!!!!
Gott að þú sért sátt við skólaverkefnin!!
Góða skemmtun á tónleikunum, það er ekki verið að bjóða manni með :-( Nei, allt í lagi, er ekki stór aðdáandi!!!
Knús

Anonym sagde ...

Leiðinlegt að missa af hárgreiðslu módel dæminu :) Skemmtu þér konunglega á tónleikunum, ég skal hugsa hlýlega til ykkar :)

Anonym sagde ...

eru menni ekki í standi að blogga í dag ????

Anonym sagde ...

Rosalega er Alexandra flott stelpa. Thú mátt alveg kíkja vid, ef thú kemur til Sjálands. kk. Solla

Anonym sagde ...

Ekkert smá gaman að heyra í þér og Celine um daginn!! Var alveg að lifa mig inn í þetta ;)Greinilegt að þú skemmtir þér alveg konunglega!

Kv. Hildur