Kom frá London í gær. Heimsótti þar Palla bróðir og fjölskyldu hans. Fengum konunglega móttögu og nutum heimsóknarinnar og borgarinnar. Það er hreint með ólíkindum hvað fólk í þessari risastóru stórborg er vinalegt(allavega miðað við það eina sem ég hef að miða við sem er Kaupmannahöfn). Ef ég stoppa einhvern út á götu í Kaupmannahöfn til að spyrja til vegar, hrögglast sá aðspurði til baka, horfir á mann með flóttasvip í augum þar til hann [sá aðspurði er hér í kk en gæti allt eins verið kvk] áttar sig á því að maður vill honum ekkert illt og þá er líklegast svarað með lítilli bendingu eða hrist hausinn því viðkomandi getur ekki aðstoðað. Í London eru allir tilbúnir til að aðstoða mann, það kemur engin tortryggisvipur, bara bros og öll sú aðstoð sem viðkomandi getur veitt, ef hann ratar ekki, bendir hann tvímælalaust á hvert maður getur leytað til að fá aðstoð.
Mér finnst það merkilegt hvernig maður getur komið hvort öðru við þegar maður býr í þvílíkri stórborg sem London er. það eru 22 miljón manns í London á venjulegum vinnudegi!
Næstu helgi verð ég á Íslandi. Fjölskyldumótið flutt um eina helgi svo ég geti náð að hitta alla, eða nánast alla yfir helgina og fengið að máta nýburana í fjölskyldunni. Hlakka ég til að sjá sumarbústaði foreldranna en þau eru bæði að byggja nýja bústaði. Ætla ég að taka með mér heim til DK, uppáhalds frumburðinn sem hefur þá dvalið í heilan mánuð heima á IS. Er ég að reyna að finna út hvernig ég kemst frá flugvellinum upp í Fljótshlíð, en almannasamgöngur eru nú ekki uppá marga fiska á eyjunni litlu. Væri flott ef það væri Túba(Tube = neðanjarðarlest) á Íslandi líkt og í London.
Við fórum í dagsferð út fyrir borgina stóru og eftir að hafa rölt um sögulegan kastala, spreyttum við okkur í völundarhúsi og fundum auðvitað miðjuna... fyrir rest. Á myndinni sjást Palli með dótturdótturina hana Chloe.
10 kommentarer:
Gaman að fá ykkur aftur heim :)
En svo stingið þið af til Íslands. Hvað verðurðu lengi á ÍslandiÖ
Heyrðu heyrðu ertu að koma? Eru allar mínúturnar bókaðar eða er tími í knús??
Kveðja Yoka
Sæl, það er alltaf gaman að lesa bloggið þitt :)
En já rauðvín, þá mæli ég með Rosemount, eða það heitir e-ð álíka og svo bara Merlot, en ég er nú ekki viss um að það er svo ódýrt.
Ég ætla að kanna þetta með London búana þegar ég skelli mér þangað 8 ágúst.
Já og svo eit atriði, Ryanair er versta flugfélag sem ég hef flogið með, hélt á tíma punkti í þeirri vél að þetta væri mitt síðasta ;)
Hafðu það gott og ég bið að heilsa öllum :) Valey
Gleymdi að segja með rauðvínið! Hringdu í Juha... hann veit ;)
Knús
Eva
bla bla bla dæturnar sofnaðar og hafa það gott skemmtu þér vel á islandi !
Bestaskinn
Sælt veri fólkið, ákvað að líta við hjá þér á bloggrúntinum mínum. Greinilega mikið gaman að skella sér til útlanda. Vona svo að Íslandsferðin hafi verið góð hjá þér (fórstu bara ein þangað?).
Kv. Begga
Hæ gaman að þið skylduð geta farið til London og svo Íslands, vorum að koma frá frábærri ferð til Kaliforníu, heyrumst knús til ykkar allra, Þöll
Innlitskvitt og góðar kveðjur :)
Guðrún Þorleifs
Hafdu thad gott og góda ferd til Íslands. Bestu kvedjur til alls frændfólksins. kær kvedja, Solla, Freyja og Veróníka.
er ekkert að gerast hér hjá þér elskan
yoka
Send en kommentar